Bloggarar hafa kosið myndskeiðið vinsæla “The Machine is Us/ing Us” besta myndskeiðið á Netinu sem á einn eða annan hátt má tengja námi og kennslu. Þessi óformlega viðurkenning er afrakstur einstaklega skemmtilegs framtaks fjögurra bloggara sem allir skrifa um skólastarf og óskuðu eftir ábendingum frá lesendum um áhugaverð myndskeið.
Alls bárust 63 tilnefningar. Til gamans má geta þess að sjálfur tilnefndi ég frábæran fyrirlestur Ken Robinson á TED 2006 og Dove myndskeiðið sem ég nota í kennslu í stafrænni myndvinnslu við Fjölbrautaskólann í Breiðholti.
Ég vek sérstaka athygli á því að stofnaður hefur verið Wikivefur með upplýsingum um keppnina og er hann vel þess virði að kynna sér nánar. Ég efast ekki um að meðal tilnefndra myndskeiða megi finna margar gersemar sem koma að góðum notum í námi og kennslu. Ég mæli t.a.m. með því að þið skoðið myndskeiðið sem lenti í öðru sæti og fjallar um tækniþjónustu á miðöldum.


