Close

Svona gerum við

Námsefni

Teachertube – myndskeið fyrir kennara

teacher-tube.jpgTeachertube er safn stuttra myndskeiða sem kennarar geta nýtt í kennslu. Eins og nafnið gefur til kynna er hér á ferðinni enn ein útgáfan af Youtube og sambærilegum vefjum nema hvað áherslan er öll notagildi myndskeiðanna í námi og kennslu.

Líkt og í boði er á sambærilegum vefjum geta notendur stofnað aðgang á Teachertube og sent inn eigin myndskeið eða flokkað og safnað saman myndskeiðum sem vekja sérstakan áhuga þeirra. Þannig er auðvelt fyrir notendur að halda utan um það efni sem hentar best í eigin kennslu. Þegar myndskeið eru send inn á Teachertube er einfalt að merkja þau með lykilorðum sem gerir leit að þeim einfaldari. Notendur geta einnig skráð athugasemdir við einstaka myndskeið.

Einfalt er að vísa í myndskeið á Teachertube, t.d. má vísa beint í slóð að viðkomandi myndskeiði eða samþætta myndskeiðið eigin vef með þartilgerðum kóða. Þessir eiginleikar eru fullkomlega sambærilegir við það sem gerist á samskonar vefjum, s.s. Youtube eða Google video.

Undanfarið hef ég beint athygli minni í auknum mæli að áhugaverðum myndskeiðum á Netinu sem ég get notað með nemendum mínum enda hefur reynslan af þeirri notkun verið mjög góð. Teachertube er kjörinn vettvangur fyrir slíka leit. Myndskeiðin sem þar má finna eru að sjálfsögðu eins misjöfn og þau eru mörg en áherslan á samfélög notenda sem deila með sér efni á þennan hátt heillar mig mjög. Ég er t.a.m. sannfærður um að stjórnendur og starfsfólk Námsgagnastofnunar gætu lært mikið af því að kynna sér þessi samfélög og alla þá orku og þann ótrúlega sköpunarkraft sem býr í þeim. Er ekki kominn tími til þess að þetta ríkisrekna, miðstýrða og allt of lokaða apparat sem Námsgagnastofnun er í dag komi úr skelinni kennurum jafnt sem nemendum til hagsbóta. Meira um það síðar.


Tengt efni

Skráðu athugasemd