Close

Svona gerum við

Námsefni

Moodle 1.8 lítur dagsins ljós

moodle_logo_smaller.gifUmfangsmiklum prófunum á nýjustu útgáfunni af Moodle námsumhverfinu, Moodle 1.8, er nú lokið. Mælt er með því að notendur uppfæri vefi sína yfir í hina nýju útgáfu.

Helstu nýjungar í Moodle 1.8

  • Aðgengi
    Moodle 1.8 styður við alla helstu alþjóðlegu aðgengistaðla. Frekari vinna á þessu sviði er áætluð enda mikil áhersla lögð á aðgengi notenda í Moodle.
  • Moodle netkerfið
    Nú er hægt að tengja einstaka Moodlevefi saman og mynda þannig net Moodlevefja. Þetta er mjög spennandi eiginleiki sem einfaldar t.a.m. skólum að vinna saman og bjóða upp á sameiginlega áfanga. Frekari vinna á þessu sviði er áætluð.
  • Heimildir og hlutverk
    Í kjölfar fjölda ábendinga frá notendum hefur heimilda og hlutverkakerfi Moodle, sem kynnt var til sögunnar í síðustu útgáfu, verið endurbætt til muna.

Ítarlegt yfirlit yfir nýjungar og endurbætur í Moodle 1.8 má finna hér. Moodle 1.8 má sækja á vefum Moodle.org. Uppfærsla á íslenska tungumálapakkanum er væntanleg innan nokkurra daga.



Tengt efni

Skráðu athugasemd