“Turn Over Your Papers … Now!” nefnast forvitnilegir útvarpsþættir í umsjón John O’Farrell á BBC Radio 4. Umfjöllunarefni þeirra ætti að höfða til kennara og áhugafólks um nám og kennslu, en þeir fjalla um námsmat. Þættirnir eru vel unnir, fróðlegir að hlusta á og líkt og aðrir útvarpsþættir á BBC Radio 4 þá eru þeir vistaðir á Netinu í 7 daga eftir að þeir eru frumfluttir.Dagskrá BBC Radio 4 er aðgengileg á vef stöðvarinnar annað hvort í gegnum sérstakan BBC Radio spilara eða sem RM skrár. BBC Radio Player er sérsniðinn spilari sem opnast í sprettiglugga þar sem hægt er að spila þætti auk þess sem birtar eru upplýsingar um annað efni.
Sumu efni verður hins vegar að streyma á R(eal)M(edia) sniði en til þess þarf sérstakan spilara RealOne (áður RealPlayer). Real Media sniðið hefur aldrei verið í uppáhaldi hjá mér en ég lét mig hafa það að sækja Real One spilarann til að hlusta á efni á BBC Radio 4 og það virkar s.s. ágætlega.
Einstaka þætti má einnig sækja á mp3 sniði og vista á stafrænum spilurum (Podcasting). Einfalt er að sækja einstaka skrár á mp3 sniði en einnig má gerast áskrifandi að þeim og sækja um leið og þeir birtast á Netinu.
BBC Radio 4 er hreint út sagt mögnuð uppspretta vandaðs útvarpsefnis sem spennandi er að nota í kennslu, t.a.m. á framhalds og háskólastigi. Reglan er sú að þættir eru gerðir aðgengilegir á Netinu í sjö daga frá frumflutningi en einstaka efni er geymt ennþá lengur.
Hér eru nokkrir áhugaverðir þættir eða þáttarraðir sem finna má á BBC Radio 4:
Vísindi
- Unearthing mysteries
Heillandi þættir um spennandi viðfangsefni eins og t.d. Antikythera gangverkið sem þróað var af forngrikkjum fyrir meira en 2000 árum. - Publish or Be Damned
Áhugaverður útvarpsþáttur um vandamálið sem felst í takmörkuðum aðgangi lærða jafnt sem leikna að niðurstöðum mikilvægra rannsókna og kenninga vegna sífellt hækkandi verðlags á fagritum. Þetta er mjög heit umræða í dag enda mikið í húfi fyrir allan almenning. Magnaður þáttur sem ég hvet alla til að hlusta á. - A further five numbers
Skemmtilegir og fróðlegir þættir um tölur. Veist þú t.d. hver er vinsælasta talan í heiminum?
Saga
- Great lives
Í hverri viku er þekktur einstaklingur fengin til þess að tilnefna persónu sem viðkomandi dáist af. Eina skilyrðið fyrir valinu er að persónan sem þeir velja sé ekki lengur á lífi. Síðan er fenginn sérfræðingur um persónuna fyrir valinu varð til að fjalla um hana. Frábær hugmynd að útvarpsþáttum. - Document
Verðlaunaðir þættir þar sem hver þáttur grundvallast á einstaka sögulegu skjali. Mjög góðir þættir. - The long view
Jonathan Freeland fjallar um viðburði í fortíðinni sem geta varpað ljósi á viðburði í samtímanum. - The Viking Way
Um víkingana eins og nafnið gefur til kynna. - In Our Time
- Melvyn Bragg (m.a. þekktur fyrir The South Bank Show) rannsakar hugmyndasöguna með aðstoð góðra gesta. Einfaldlega frábært efni í kennslu.
Listir og menning
- The Film Programme
Umfjöllun um gamlar jafnt sem nýjar bíómyndir frá öllum hugsanlegum sjónarhornum.


