Moodle - ekki bara fyrir skóla

Skrifað 07. April 2007
Engar athugasemdir frá lesendum

moodle_logo_smaller.gifÍ nýrri og mjög ítarlegri skýrslu eLearning Guild, Report on Learning Management Systems (LMS) kemur berlega í ljós að notkun Moodle einskorðast ekki við hið akademíska umhverfi heldur nýtur lausnin mikilla vinsælda innan smærri og meðalstórra fyrirtækja.

Moodle námsumverfið er hagnýtt innan fyrirtækja á svipaðan hátt og í skólakerfinu, þ.e. við framsetningu á námi og þjálfun starfsmanna og við námsmat. Samkvæmt skýrslunni er notkun Moodle algengust meðal smærri og meðalstórra fyrirtækja en þá er kerfið oft nýtt sem skammtímalausn hjá stærri fyrirtækjum og stofnunum og stundum sem áfangi að umfangsmeira kerfi.

Niðurstöður skýrslunnar virðast mjög áhugaverðar, en því miður hefur mér ekki gefist tækifæri til að lesa hana alla þar sem hún er ekki aðgengileg í heild sinni án greiðslu. Eftirfarandi hefur þó verið gefið upp á vef eLearning Guild:

  • 29.58% þátttakenda í rannsókninni áætla að uppfæra námsstjórnunarkerfi sitt og þar af ætla 10.69% að yfirgefa núverandi kerfi og innleiða nýtt.
  • Moodle er með mestu markaðshlutdeild og nýtur mestu ánægju notenda í smærri fyrirtækjum (5000 starfsmenn eða færri)
  • 11% þátttakenda telja fjárfestingu sína í námsstjórnunarkerfi ekki hafa skilað þeim arði enn sem komið er.
  • 21% þátttakenda segjast nota fleiri en eitt námsstjórnunarkerfi.

Það sem er hvað áhugaverðast við þessar tölur er sú niðurstaða að tæplega 90% þátttakenda telja fjárfestingu í námsstjórnunarkerfi skila arði (return of investment). Það hlýtur að gefa í skyn almenna ánægju notenda með kerfin. Á hinn bóginn kemur mér á óvart að allt að 21% notenda segjast nýta fleiri en eitt námsstjórnunarkerfi. Það getur varla talist heppilegt. Ég er lítið undrandi á því að 30% þátttakenda segjast ætla að uppfæra kerfi sitt, enda nýjar útgáfur tíðar. Á hinn bóginn er greinilegt að ákveðinn hluti þátttakenda í rannsókninni er það óánægður með kerfi sitt að hann hyggur á róttækar breytingar. Líklegast er alltaf við slíku að búast en samt væri fróðlegt að vita meira um þennan þátt.

Í skýrslunni var úthlutað viðurkenningum til netbundinna námsumhverfa í nokkrum flokkum. Eftirfarandi viðurkenningar komu í hlut Moodle.

  • Platínumverðlaun fyrir markaðshlutdeild í smáum og meðalstórum fyrirtækjum.
  • Platínumverðlaun fyrir ánægju notenda í skólakerfinu og opinberum stofnunum.
  • Gullverðlaun fyrir markaðshlutdeild í skólakerfinu og opinberum stofnunum.
  • Gullverðlaun fyrir ánægju notenda í smáum og meðalstórum fyrirtækjum.

Tengt efni:


Related Post



Skráðu athugasemd

  • Í stuttu máli

    Í tilefni af vísindavöku 26. september 2008 efnir Rannís til teiknisamkeppni barna 6-9 og 10-12 ára. Þema keppninnar er “Hvernig hafa vísindin áhrif á daglegt líf mitt?”.
    Í tilefni af vísindavöku 26. september 2008 efnir Rannís til ljósmyndamkeppni meðal ungs fólks á aldrinum 13-18 ára. Efni myndanna skal vera “vísindin í daglegu lífi”.
    1.-3 september nk. stendur OECD/CERI fyrir tilviksathugun á upplýsingatækni á Íslandi (notkun stafræns námsefnis). Til landsins koma fimm sérfræðingar sem skoða ákveðin tilvik og þeir vilja endilega fá að ræða við kennara um hvernig þeir nota þessi tæki. Meira á vef 3F.
    Skólagjöld í opinberum menntaskóla eru orðin að veruleika segir Dagbjört Hákonardóttir í pistli í Vefritinu.
  • Gagn og gaman