FJÖLÍS rannsakar kennsluvefi HÍ og KHÍ

Skrifað 14. April 2007
Flokkur: Rannsóknir
Engar athugasemdir frá lesendum

FjölísFJÖLÍS, hagsmunafélag samtaka sem koma fram fyrir hönd rétthafa að verkum er njóta höfundarréttarverndar skv. höfundalögum, hefur gert samkomulag við HÍ og KHÍ og hugsanlega aðra háskóla um tímabundinn aðgang trúnaðarmanns (tilnefndan af Fjölís) að kennsluvefjum skólanna í því skyni safna upplýsingum um stafræna notkun og vinnslu kennsluefnis sem þar er að finna.

Rannsóknin er liður í undirbúningi að varanlegu fyrirkomulagi um meðferð höfundarréttarlegra atriða vegna stafrænnar notkunar og vinnslu kennsluefnis á háskólastigi. Hvað nákvæmlega er átt við með því orðalagi veit ég ekki.

Kennurum KHÍ hefur verið tilkynnt þessi aðgerð (í tölvupósti) og samkvæmt þeirri tilkynningu mun trúnaðarmaður telja og magnmæla tilvik þar sem kennsluefni er skannað, afritað á stafrænu formi eða vísað til þess á vefsvæðum, bæði opnum og aðgangsvörðum. Tekið skal fram að trúnaðarmaður lýsir yfir þagmælsku og aðgangur hans verður ekki notaður til að fara inn á umræðuvefi kennsluvefjanna. Ítarleg leit á vef FJÖLÍS og háskólanna beggja um þessar aðgerðir (sem þegar hafa verið framkvæmdar við HÍ) skilaði engu. Ég veit heldur ekki til þess að kennarar skólanna hafi nokkuð haft um það að segja að óviðkomandi einstaklingi verði verið hleypt inn á námskeið þeirra (kannski einhver lesandi geti upplýst hvort svo hafi verið).

Ég verð að segja eins og er að þetta samkomulag Fjölís og HÍ/KHÍ trufla mig dálítið við fyrstu sýn. Ég get vel skilið áhuga FJÖLÍS á því að tryggja rétta meðferð efnis sem nýtur höfundarréttarverndar og auðvitað er mjög fróðlegt að vita hvernig notkun stafræns efnis er háttað á kennsluvefjum almennt. Kennarar hafa líka hagsmuna að gæta þar sem sumir þeirra eru sjálfir höfundar höfundarvarins kennsluefnis. Ég er hins vegar ekki viss um að mér hugnist sú leið sem hér er farin. Það væri einnig ágætt að fá nánari útskýringu á orðalaginu “…varanlegur fyrirkomulagi um meðferð höfundarréttarlegra atriða vegna stafrænnar notkunar og vinnslu kennsluefnis á háskólastigi”.

Ég hef persónulega ekkert á móti því að hleypa aðila inn í kennslustofuna til mín í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti og annars staðar þar sem ég kenni í því skyni að fylgjast með kennslunni og samskiptum mínum við nemendur. Ég hef heldur ekkert að fela á kennsluvefjum mínum og hef oftar en einu sinni hleypt aðilum þangað inn sem gestum að fylgjast með framgangi mála. Það er sjálfsagt og í raun mikilvægt fyrir okkur kennara að greiða leið þeirra sem vilja rannsaka eða fræðast um kennsluhætti hvort sem um er að ræða ósk um nærveru í hefðbundinni kennslustofu, viðtöl eða aðgang að netbundnu námsumhverfi. Ég hef sjálfur óskað eftir slíkum aðgangi á námskeið annarra kennara og á eftir að gera mun meira af því í náinni framtíð í kjölfar rannsóknar sem ég vinn að um þessar mundir. Ég er hins vegar ekki viss um að ég tæki því allskostar vel ef yfirstjórn skólans samþykkti nánast ótakmarkaðan aðgang eftirlitsaðila hagsmunasamtaka að kennslustofu minni og efni án samráðs eða samþykkis frá mér.

Sjálfur hef ekki teljandi áhyggjur af því að kennarar við íslenska háskóla (eða á öðrum skólastigum) séu í stórum mæli að brjóta höfundarréttarlög og sjálfsagt snýst þetta mál ekki alfarið um það heldur notkun á efninu. Ég get að sjálfsögðu ekkert fullyrt í þeim efnum en mér finnst það líklegt. En það er skoðun mín að ef hagsmunaaðilar telja knýjandi þörf á því að rannsaka vinnslu og notkun stafræns kennsluefnis eða verklags kennara og nemenda innan aðgangsvarinna kennsluvefja skólastofnana þá verði það að gerast með öðrum hætti en hér er gert. Kennaraháskóli Íslands hefur nú þegar aðila sem hefur fullkominn aðgang að kennsluvefjum skólans, þó ekki í rannsóknartilgangi. Hvers vegna ekki að fela honum þetta verkefni? Er honum ekki treystandi? Er þetta spurning um kostnað? Gæti FJÖLÍS ekki greitt fyrir faglega úttekt á vinnslu og notkun stafræns kennsluefnis sem framkvæmd væri af aðila eða aðilum innan KHÍ. Hvað með rannsóknarstofnun KHÍ? Gæti hún haft umsjón með rannsókn sem þessari?

Samkomulag FJÖLÍS og HÍ/KHÍ vekur upp fjölmargar spurningar enda er um að ræða umfangsmikla aðgerð við stærsta háskóla landsins. Hér eru nokkrar sem forvitnilegt væri að fá svör við:

  • Að hvaða frumkvæði er farið í þessar rannsókn, háskólanna eða FJÖLÍS?
  • Má búast við samskonar aðgerðum á öðrum skólastigum, s.s. framhaldsskólastiginu?
  • Má búast við samskonar aðgerðum í öðrum háskólum? Hafa þær kannski þegar verið framkvæmdar?
  • Verða niðurstöðurnar gerðar opinberar?
  • Verður tillit tekið til efnis sem dreift er með opnum leyfum eins og t.a.m. Creative Commons eða GPL, þ.e. verður það greint, talið og magnmælt sérstaklega?
  • Hafa sambærilegar aðgerðir verið framkvæmdar við erlenda skóla með þeirra samþykki? Ef svo er væri forvitnilegt að vita hvort þær hafi ekki skapað neitt umtal eða vangaveltur?
  • Er rannsókn sem þessi háð leyfi frá persónuvernd (efast reyndar um það sjálfur)?
  • Er annað kennsluefni skoðað á sambærilegan hátt, s.s. ljósritun kennara á kennsluefni?
  • Má búast við eftirfylgni eða verður þessi rannsókn framkvæmd einungis einu sinni?
  • Hversu fordæmisgefandi er þetta samkomulag og aðgangur trúnaðarmanns FJÖLÍS?
  • Hvers vegna eru engar upplýsingar um þessa rannsókn að finna á vefjum skólanna eða vef FJÖLÍS?
  • Nú efast ég ekki um að einhverjum lesendum finnst ég óþarflega smámunasamur og jafnvel ósanngjarn um það sem kalla mætti fullkomlega eðlilegt samkomulag hagsmunaaðila og sjálfstæðra skólastofnana. Einhverjir munu örugglega freistast til að benda á að ekki er verið að veita aðgang að persónuuplýsingum, hvorki um nemendur eða kennara. Málið er hins vegar miklu stærra í sniðum en þessi eina afmarkaða rannsókn og snýst að mínu áliti um grundvallaratriði í samskiptum skóla og starfsfólks þeirra, nemenda og utanaðkomandi hagsmunaaðila eða fyrirtækja. Ég spyr því hver er stefna Háskóla Íslands og Kennaraháskólans hvað varðar aðgang og umferð óviðkomandi aðila að aðgangsvörðum svæðum nemenda og kennara? Hvar eru mörkin dregin? Hverju koma háskólarnir til með að svara þegar hagsmunafélag rétthafa STEF (Samband tónskálda og eigenda flutningsréttar) óskar eftir aðgangi að aðgangsvörðum heimasvæðum nemenda og kennara í því skyni að kanna notkun og vinnslu efnis sem þar er að finna? Hverju verður til svarað þegar erlendir hagsmunaaðilar koma með samskonar fyrirspurn nú þegar augljóst fordæmi er fyrir hendi?

    Til að fyrirbyggja allan misskilning þá vil ég taka það skýrt fram að ég spyr þessara spurninga ekki vegna þess að ég styðji á einhvern hátt við ólöglega afritun eða dreifingu verka sem njóta höfundarréttarverndar skv. höfundalögum heldur tel ég mikilvægt að skólastofnanir og opinberar stofnanir almennt taki skýra afstöðu til aðgengis óviðkomandi aðila að innviðum eigi tölvukerfa. Ef slík stefna hefur verið mótuð þá get ég ekki fundið hana, hvorki á vef KHÍ eða . Siðareglur skólanna taka ekki á því sem hér um ræðir (reyndar fann ég hvergi siðareglur KHÍ á vef skólans heldur auða síðu þar sem þær áttu að vera). Vitaskuld má vel vera að stefnan fyrirfinnist þrátt fyrir að ég komi ekki auga á hana, en hafi hún ekki verið mótuð þá legg ég til að skólarnir (sem brátt verða sameinaðir) hefjist handa hið fyrsta við smíði hennar.


Tengt efni

Skráðu athugasemd

Dagatalið – verkefni í ritvinnslu

    Af sama tagi

    Nýlega lesið

    Eldra efni