Myndritin komin – glærusmiður væntanlegur

Skrifað 18. April 2007
Flokkur: Almennt
Engar athugasemdir frá lesendum

Google er greinilega full alvara með smíði og markaðssetningu á heildstæðum, netbundnum skrifstofuvöndli í anda Office frá Microsoft. Í gær kynnti fyrirtækið áætlanir sínar um glærusmið sem opinberaður verður í sumar og í dag gat að líta nýjan möguleika sem lengi hefur verið beðið eftir í Google Docs töflureikninum, nefnilega myndritum.

Google Docs samanstendur af netbundinni ritvinnslu og töflureikni. Glærusmiður er væntanlegur eins og áður segir. Ritvinnslan og töflureiknirinn eru enn í mikilli þróun og bjóða einungis upp á algengustu möguleika sambærilegs hugbúnaðar. Á hinn bógin má benda á að flestir notendur hefðbundins hugbúnaðar nýta ekki eiginleika hans nema að mjög takmörkuðu leyti. Sjálfur nota ég Google Docs til mjög fjölbreyttra verka og fer sú notkun stöðugt vaxandi.

Myndritin í Google töflureikninum svipar mjög að gerð og virkni til sambærilegra kosta í Microsoft Excel og Open Office en eru óneitanlega nokkuð frumstæðari, enn sem komið er í það minnsta. Það er t.a.m. mikill ókostur að ekki er hægt að varpa myndriti beint úr töflureikninum yfir í ritvinnsluna og væntanlega verður nokkuð bið á að við fáum að sjá þess háttar samvirkni ritvinnslu og töflureiknis Google. Skrefið sem tekið var í dag er hins vegar mikilvægt og það verður spennandi að fylgjast með framhaldinu.
google_myndrit.jpg

Hvað sem segja má um kosti og galla netbundins hugbúnaðar þá býr hann yfir öfundsverðum eiginleikum sem skapa honum sérstöðu umfram hefðbundinn hugbúnað. Hér er ég fyrst og fremst að vísa til samskipta og samvinnumöguleika lausna sem lifa á Netinu. Það er t.a.m. mjög einfald að deila skjali í Google Docs og sambærilegum lausnum með öðrum notendum og vinna þannig saman að ritun þess eða yfirlestri. Skjölin eru auk þess aðgengileg hvar og hvenær sem er, þ.e. svo lengi sem aðgengi að Netinu er tryggt.

Google Docs er ekki síst kjörið í skólastarfi og hvet ég kennara á öllum skólastigum til að kynna sér þessa spennandi þróun sem á sér ekki bara á sviði tölfureikna og ritvinnslu heldur hvers kyns hugbúnaðar. Netið er ekki lengur vettvangur til framsetningar og birtingar efnis heldur sköpunar og samvinnu.


Tengt efni

Skráðu athugasemd