Pirates of Silicon Valley

Skrifað 24. April 2007
Flokkur: Almennt
Engar athugasemdir frá lesendum

Kvikmyndin Pirates of Silicon Valley er ekkert minna en skylduáhorf fyrir alla þá sem hafa áhuga á sögu upplýsingatækninnar. Í myndinni segir á skemmtilegan hátt frá upphafsárum heimilistölvunnar og þeim fjórum einstaklingum sem eiga þar hvað stærstan hlut að máli. Hér á ég við Steve Wozniak, Steve Jobs, Paul Allen og Bill Gates. Ég væri varla að birta þennan pistil núna ef myndin væri ekki aðgengileg í fullri lengd á Google Videos.


Myndin byggir á bókinni Fire in the Valley og var tilnefnd til 5 Emmy verðlauna árið 1999 samkvæmt IMDB vefnum. Hún hlaut því miður engin en það er engin afsökun fyrir að horfa ekki á hana.


Tengt efni

Skráðu athugasemd

Dagatalið – verkefni í ritvinnslu

    Af sama tagi

    Nýlega lesið

    Eldra efni