Evrópuþingið samþykkir umdeilda tilskipun um brot á höfundarrétti

Skrifað 25. April 2007
Flokkur: Almennt
Engar athugasemdir frá lesendum

Evrópuþingið samþykkti í dag mjög umdeilda tilskipun þar sem aðstoð, hvatning eða tilstuðlan að stórtæku broti á höfundarrétti er gerð að glæpsamlegu athæfi. Viðurlög geta falið í sér bann við að stunda viðskipti, eignupptöku, sektir upp að allt að 100.000 evrum (tæplega 9 milljónir íslenskra króna á gengi dagsins í dag) auk þess sem viðkomandi fer á sakaskrá.

Lítið sem ekkert hefur farið fyrir þessu máli hérlendis en í mörgum evrópulöndum, s.s. Englandi og Hollandi, hefur andstaða við tilskipunina verið mikil. Á vefnum Copycrime.eu er almenningur hvattur til þess að skrá nafn sig á undirskriftarlista þar sem tilskipuninni er mótmælt og hafa yfir 8600 manns þegar orðið við þeirri beiðni. Andstæðingar tilskipunarinnar telja orðalag hennar allt of óljóst og loðið og til þess eins fallið að þjóna hagsmunum stórfyrirtækja og gera almenning að ótýndum glæpamönnum. Fylgismenn tilskipunarinnar segja hana hins vegar einungis beinast að stórfelldum brotum á höfundarrétti í hagnaðarskyni. Það má velta fyrir sér örlögum skrárskiptasamfélags eins og torrent.is og aðstandendum þess ef tilskipun á við þessa yrði lögleidd hér á landi.

Það sýndi sig í atkvæðagreiðslunni í dag að undirskriftarlistar hrökkva skammt enda var tilskipunin samþykkt með 374 atkvæðum gegn 278 (17 sátu hjá). Andstæðingar hennar viðurkenna að þessi orrusta hafi tapast en fullyrða að sigur geti enn unnist í stríðinu. Næst kemur tilskipunin fyrir Ráð Evrópusambandsins (The Council of the
European Union) þar sem fulltrúar ríkisstjórna allra landa
Evrópusambandsins munu taka hana til umfjöllunar. Vonast andstæðingar hennar til þess að málflutningur þeirra hljóti betri hljómgrunn á þeim vettvangi.

Sjálfur óttast ég tilskipanir sem þessar og tel augljóst að þær þjóðir sem hafa gengið hvað harðast fram á vettvangi höfundarréttar og einkaleyfa séu þegar komnar í miklar ógöngur. Hér má t.a.m. benda á Bandaríkjamenn og Frakka. Einkaleyfakerfið í Bandaríkjunum eitt og sér er svo yfirgengilega fáránlegt að það væri efni í marga langa pistla að fjalla um það. Ég læt duga að vísa í umfjöllun mína um einkaleyfi Blackboard á námsstjórnunarkerfum.

Ég mæli eindregið með því að allir þeir sem vilja kynna sér höfundarrétt nánar lesi bækur Lawrence Lessig, The Future of Ideas og Free Culture.


Tengt efni

Skráðu athugasemd