Velkomin í mitt líf
Einelti er sorgleg staðreynd og það á sér stað í innan veggja skólastofa og utan þrátt fyrir allar aðgerðir, boð og bönn. Með tilkomu farsíma og Netsins hefur einelti tekið á sig enn fleiri myndir en samkvæmt niðurstöðum könnunar sem birtar eru á vef Olweusarverkefnisins hafa yfir 50% stúlkna sem orðið hafa fyrir einelti orðið fyrir því á Netinu. Hið sama segja tæplega 40% drengja. Á hinn bóginn getur Netið getur verið öflugur vettvangur fyrir þá sem berjast gegn einelti í öllum sínum myndum. Hér er ein leið sem hugsanlega er vænlegt til árangurs.
Hero in the Hallway er einstaklega vel gert myndband þar sem viðfangsefnið er einelti. Höfundar eru kennararnir Bobby Barrett frá Cary Grove High School og Kyle Barrett frá háskólanum í Illinois. Hver veit nema þessi leið dugi vel til þess að ná athygli ungmenna í dag? Ég hvet ykkur til þess að láta á það reyna með því að dreifa þessu myndbandi til sem flestra nemenda. Það má gera með því að senda slóðina að þessari síðu eða smella á “share” hnappinn neðst í hægra horni myndbandsins.


