Lífsins bók - draumur að veruleika

Skrifað 12. May 2007
Engar athugasemdir frá lesendum

eol_logo.gifÁ TED 2007 ráðstefnunni lýsti bandaríski líffræðingurinn E. O. Wilson draumi sínum að vísindamenn og áhugafólk um allan heim sameinist um að skapa netbundið alfræðirit yfir öll lífsform á jörðinni.

I wish that we will work together to help to create the key tool we need to inspire preservation of earth’s biodiversity and let us call it the Encyclopedia of life.

Nú lítur út fyrir að draumur Wilson geti orðið að veruleika.

Netbundið, opið og aðgengilegt alfræðirit um allt líf á jörðinni samastæði af yfir 300 milljón vefsíðum og myndi þjóna margvíslegum tilgangi, ekki síst þeim að kortleggja líf á jörðinni í því skyni að skilja það betur og vernda. Verndunarsjónarmiðið er Wilson mjög ofarlega í huga eins og berlega kemur fram í fyrirlestri hans á TED 2007.

We know so little about nature, he says, that we’re still discovering tiny organisms indispensable to life; yet we’re still steadily destroying nature.

Slíkur gagnagrunnur yrði einnig ómetanlegur í námi og kennslu og verður spennandi að fylgjast með framþróun þessa metnaðarfulla verkefnis. Nú þegar hafa fjölmargir áhrifamiklir aðilar lýst áhuga á verkefninu og veitt til þess styrkjum. Á vefnum www.eol.org er hægt að sjá kynningarmyndband (sjá einnig hér að neðan) um alfræðiritið og sýnishorn af því hvernig hún kemur til með að líta út.


Related Post



Skráðu athugasemd

  • Í stuttu máli

    Í tilefni af vísindavöku 26. september 2008 efnir Rannís til teiknisamkeppni barna 6-9 og 10-12 ára. Þema keppninnar er “Hvernig hafa vísindin áhrif á daglegt líf mitt?”.
    Í tilefni af vísindavöku 26. september 2008 efnir Rannís til ljósmyndamkeppni meðal ungs fólks á aldrinum 13-18 ára. Efni myndanna skal vera “vísindin í daglegu lífi”.
    1.-3 september nk. stendur OECD/CERI fyrir tilviksathugun á upplýsingatækni á Íslandi (notkun stafræns námsefnis). Til landsins koma fimm sérfræðingar sem skoða ákveðin tilvik og þeir vilja endilega fá að ræða við kennara um hvernig þeir nota þessi tæki. Meira á vef 3F.
    Skólagjöld í opinberum menntaskóla eru orðin að veruleika segir Dagbjört Hákonardóttir í pistli í Vefritinu.
  • Gagn og gaman