Searchology er árlegur viðburður í boði Google og vettvangur fyrir kynningar á bæði nútíð og framtíð leitar á Netinu. Mesta athygli í ár vakti án efa kynning Google á svokallaðri alhliða leit eða “universal search” sem fyrirtækið hyggst taka upp á næstunni.Þegar leitað er eftir upplýsingum á Netinu í dag geta notendur valið um nokkrar ólíkar tegundir leitar allt eftir því á hvaða sniði leitarniðurstöðurnar eiga að vera og hvar er leitað. Google býður upp á öfluga leit að myndskeiðum, myndum, fréttum, landakortum, bókum, bloggsíðum og auðvitað hefðbundum vefsíðum. Ókosturinn er hins vegar sá að um er að ræða aðskildar niðurstöður eftir sniði og eðli leitarinnar.
Markmiðið með alhliða leit er að birta samþættar leitarniðurstöður þar sem blandst saman t.d.hefðbundnar vefsíður, bloggfærslur og myndskeið sem tengjast viðfangsefninu. Hið nýja fyrirkomulag hefur þegar verið tekið í notkun á Google.com en eins og oft þegar Google uppfærir þjónustur sínar þá gerist það í áföngum og því ekki víst að allir fái að njóta herlegheitanna þegar í stað.
Alhliða leit er klárlega viðbrögð Google við þeim stórfelldu breytingum sem hafa orðið á Netinu og efnisinnihaldi þess síðustu árin. Skrefið má einnig túlka sem fyrirbyggjandi aðgerð gagnvart nýjum sérhæfðum leitarþjónustur sem gætu í framtíðinni ógnað markaðshlutdeild Google. Google er auðvitað ráðandi þegar kemur að leit á Netinu og varhugavert fyrir þá að koma notendum sínum á óvart með of viðamiklum breytingum. Fyrir vikið er þessi breyting mjög áhugaverð.


