Í því skyni að prófa DayliLit gerðist ég áskrifandi að einni skemmtilegustu ævintýrasögu sem skrifuð hefur verið, nefnilega Gulleyjunni eftir skoska rithöfundinn Robert Louis Stevenson. Gulleyjan hefur lengi verið í uppáhaldi hjá mér og ég hef margoft lesið hana, en aldrei í tölvupósti.
DayliLit skiptir Gulleyjunni í 88 hluta og sendir mér þrjá hluta á viku, þ.e. á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum. Ég hef einnig val um að fá sendingar daglega eða á virkum dögum einungis. Hver hluti er hæfilega langur þannig að það tekur ekki nema nokkrar mínútur að lesa hann. Ég hef einnig kost á því að fá næsta hluta sendan samstundis og auðvitað get ég hætt áskriftinni hvenær sem er.
Hver einstaka bók á DayliLit hefur eigin umræðuvef og geta áskrifendur rætt sín á milli um bókina hafi þeir áhuga á því. Ég ætla að láta reyna á þjónustu DailyLit dálítið lengur en ég er ekki frá því að þetta gæti reynst hentugt verkfæri t.d. í tungumálakennslu þar sem nemendur gerast áskrifendur að ákveðinni bók og ræða um hana annað hvor á umræðuvef DailyLit eða innan námsstjórnunarkerfis viðkomandi skóla.


