Helsta nýjungin og sú sem hvað mesta athygli hefur fengið í fjölmiðlum og netheimum nefnist iTunes Plus og er sá hluti iTunes þar sem seld er “varnarlaus” tónlist ef svo má að orði komast. Það orð virðist alla vega lýsa vel viðhorfi flestra útgáfurisanna til tónlistar sem seld er á stafrænu sniði án afritunarvarna eða annarra skerðinga á aðgengi eða notkun. Það er óskandi að samvinna EMI og Apple leiði til nýrra og betri tíma á þessum vettvangi en ég er einn af þeim sem er sannfærður um að á meðan útgefendur þrjóskast við að bjóða neytendum upp á raunhæfa valkosti við kaup og not á tónlist og öðru stafrænu afþreyingarefni muni samfélög skráarskiptara blómstra. Apple hefur reyndar ekki verið barnanna best á þessu sviði þar sem tónlist sem keypt er af fyrirtækinu hefur hingað til ekki verið hægt að spila á öðrum vélbúnaði nema þeim sem framleiddur er af Apple. En talandi um valkosti þá skiptir þetta okkur íslendinga svo sem litlu sem engu máli á meðan við getum ekki keypt tónlist af Apple í gegnum iTunes.
Önnur spennandi nýjung í iTunes snertir skólastarf en frá og með útgáfu 7.2 er iTunes U fullkomlega samþætt iTunes vefversluninni. Þetta þýðir að kennsluefni háskóla sem nýta sér iTunes U er nú aðgengilegt innan iTunes, en áður var um aðskilda hluta að ræða. Samkvæmt upplýsingum á vef Apple nýtir u.þ.b helmingur af 500 bestu háskólum Bandaríkjanna iTunes U við dreifingu á stafrænu efni til nemenda og stór hluti af því efni er aðgengilegt án endurgjalds.


