@Google viðburðir og myndskeið sem námseiningar
Google er ekki eitt fyrirtækja um þann skemmtilega sið að bjóða reglulega til sín rithöfundum, fræðimönnum, listafólki og jafnvel stjórnmálamönnum með stutta fyrirlestra um sérsvið sitt eða málefni líðandi stundar. Ólíkt flestum öðrum þá hefur Google gert þessar uppákomur aðgengilega okkur hinum undir fyrirsögninni @Google Talks rásinni á Youtube.
Viðburðirnir á @Google Talks eru eins ólíkir og þeir eru margir, en þegar þetta er skrifað þá er hægt að horfa á 79 myndskeið þar. Undir @Google Talks má svo finna afmarkaðri viðfangsefni eins og t.d. Authors@google eða Women@google. Og það eru engir afdalabændur sem koma fram í nafni fyrirtækisins með fullri virðingu fyrir landbúnaðargeiranum. Undir yfirskriftinni women@google hafa t.a.m. komið fram áhrifamiklar athafnakonur eins og Hillary Clinton og Maria Shriver.
YouTube er eins og flestir vita einn stærsti ef ekki stærstur vefja sem bjóða netverjum upp á hýsingu og birtingu á myndskeiðum. Vefurinn er í eigu Google sem einnig rekur Google Videos og svona í leiðinni vil ég nota tækifærið og spá því að þeir verði á endanum sameinaðir. En YouTube og sambærilegir vefir eru annað og meira en opnar og aðgengilegar hátækniskemmur fyrir myndskeið. Þeir eru risavaxin samfélög netverja.
Hver sem áhuga hefur getur stofnað aðgang hjá YouTube endurgjaldslaust, hýst eigin myndskeið þar og opinberað heimsbyggðinni allri. Hver sem vill getur horft á hvaða myndskeið sem er, gefið því einkunn, bókamerkt, deilt með öðrum t.d. á eigin vefjum eða skráð athugasemdir og tekið þátt í umfjöllun með öðrum notendum. Allt eru þetta öflugir kostir þegar kemur að námi og kennslu.
Myndskeið á YouTube og öðrum álíka netsamfélögum falla ágætlega að hugmyndum manna um námsviðföng eða námseiningar (learning object). Myndskeiðum er einfalt að varpa á milli vefja og t.d. er engum vandkvæðum háð fyrir kennara að nýta myndskeið af YouTube innan netbundinna námsumhverfa eins og t.a.m. Moodle. Ég ef sjálfur góða reynslu af slíku og mælist til þess að kennarar skoði vel þennan skemmtilega kost í kennslu. Ég mælist einnig til þess að innan Kennaraháskólans verði sú leið alvarlega skoðuð að birta efni sem í dag er hýst á vefsjónvarpi KHÍ á YouTube eða öðrum sambærilegum vef. Það væri sterkur leikur hjá Kennaraháskólanum að stofna sína eigin rás á YouTube og myndi tvímælalaust auka aðgengi og nytsemi fyrirlestranna sem engan veginn fá að njóta sín í núverandi ástandi.


