Wikivefur FB keyrir á Mediawiki lausninni sem er opinn hugbúnaður og vafalítið einna reyndastur wikilausna þar sem hann er grundvöllur Wikipedia alfræðiritsins. Í upphafi verður wikivefur FB fyrst og fremst opinn nemendum og kennurum FB, þ.e. hvað innsetningu og umsýslu efnis varðar. Ég er að ganga frá beintengingu við notendagrunn Moodle vefsins á dreifnam.is sem þýðir að notendur sem hafa aðgang að kennsluvef FB eru um leið með aðgang að wikivefnum.

Ég skoðaði ýmsar wikilausnir áður en ég ákvað að sættast á Mediawiki og nýtti mér í þeirri vinnu WikiMatrix sem er frábær vefur og einfaldaði vinnuna við ákvarðanatökuna mjög. Ég verð að segja að það er hreint með ólíkindum hversu margar wikilausnir er verið að þróa um þessar mundir. Ég var um hríð mjög spenntur fyrir Twiki en ákvað að Mediawiki skyldi það vera og réði þar miklu að um traust og þrautreynt kerfi er að ræða. Um tíma koma einnig til greina að nýta þjónustu eins og Wikispaces en þrátt fyrir ýmsa kosti hennar, s.s. mun notendavænni ritil, þá kýs ég nota hugbúnað sem þýddur hefur verið á íslensku ef þess er nokkur kostur.
Ég ákvað að klæða wikivefinn í búning svipaðan og www.dreifnam.is og bætti auk þess við nokkrum viðbótum (extensions) t.a.m. í því skyni að birta nýjustu og vinsælustu færslur notenda á forsíðu vefsins. Wikivefir eru sjaldnast eins skipulagðir og almennir vefir eða með hefðbundnum, útpældum leiðarkerfum og því mikilvægt að mínu mati að gefa notendum kost á að fylgjast með því helsta sem fram fer á forsíðunni. Síðar hef ég í huga að varpa efni úr wikivefnum yfir á námsumhverfið, s.s. yfirlit yfir nýtt efni á wikivefnum á forsíðu dreifnam.is.


