Heilmikið um hugarkort
Það er óneitanlega mikið um að vera á vettvangi Hugarkorta um þessar mundir. Mindjet kynnti nýlega til sögunnar nýja útgáfu af flaggskipi sínu MindManager Pro, Mindmeister er komið úr betaprófunum og nýr netbundinn hugbúnaður, Mind 42, hefur litið dagsins ljós.
MindManager 7
MindManager er fáanleg í tveimur útgáfum, Pro og Lite, báðar hafa þær verið uppfærðar í útgáfu 7 (sjá samanburð í þessu pdf skjali). Helsta breytingin felst í nýju notendaviðmóti sem er í anda Microsoft Office. Viðmótsbreytingin er umtalsverð og en í stað valseðla er breiður borði (ribbon) efst á skjánum sem inniheldur helstu skipanir og eru þær flokkaðar eftir virkni. Aðrar breytingar eru minniháttar að mínu mati. Á vef Verkefnalausna er að finna myndbönd þar sem nýja útgáfan er kynnt.
Mindmeister opið almenningi
Betaprófunum er lokið á MindMeister og vefurinn hefur verið opnaður almenningi sem hefur um tvær þjónustuleiðir að velja. Notendur geta skráð sig fyrir ókeypis aðgangi sem gefur þeim kost á að stofna og vinna með allt að fjögur kort og nýta til þess öll helstu verkfæri til smíða og umsýslu stafrænna hugarkorta. Gjaldfrjálsa útgáfan er einnig takmörkuð að því leyti að notendur geta ekki samþætt hugarkort öðrum vefjum, s.s. birt hugakort á bloggvefjum eða innan netbundinna námsumhverfa. Þetta er ókostur sem gerir þessa leið óhentuga fyrir alla þá sem sjá hag í því að gera hugarkort aðgengileg á öðrum vefjum. Ég er t.a.m. einn þeirra.
Gjaldskylda útgáfan felur í sér ótakmarkaðan fjölda hugarkorta sem hægt er að samþætta öðrum vefjum á einfaldan máta. Áskrift að Mindmeister kostar 38,5 evrur á ári sem eru tæplega 3300 kr. á gengi dagsins í dag. Til samanburðar kostar eitt einstakt leyfi af Mindmanager Pro rúmlega 26.300 fyrir almenna notendur en 7832 fyrir skólastofnanir og nemendur. Mindmanager Lite 7 er á rétt tæpar 7000 kr fyrir almenna notendur en 3608 fyrir nemendur og skóla. Verðin eru fengin af vef Verkefnalausna, söluaðila Mindjet á Íslandi og eru án VSK. Miðað við þennan samanburð er því umdeilanlegt hvort MindMeister hafi vinninginn þegar einungis kostnaðarhliðin er skoðuð og hef ég þá í huga MindManager Lite 7 útgáfuna.
Mind 42 – ný vefbundin hugarkortalausn
Mind 42 (lesist Mind for two) er ný netbundin þjónusta þar sem róið er á sömu mið og Mindmeister. Mind 42 hugbúnaðurinn er um flest sambærilegur öðrum netbundnum hugarkortum. Notendaviðmót Mind 42 og Mindmeister virðist við fyrstu sýn nokkuð svipuð en þegar nánar er að gáð kemur þó í ljós mikilvægur munur á notkun þeirra.
Ég nota lyklaborðið mikið þegar ég bý til hugarkort og hef vanist lyklaborðsskipunum sem eru þær sömu í Mindmanager og Mindmeister. Mind 42 byggir hins vegar meira á notkun músarinnar og átti ég í stökustu vandræðum með að venjast þeirri nálgun. Að sjálfsögðu má segja að vandi minn hafi fyrst og fremst verið sá að ég er vanur öðrum hugbúnaði, en samt sem áður held ég að Mind 42 ætti að bjóða upp á sambærilega flýtilykla og annar vinsæll hugbúnaður á sama sviði. Þó ekki nema til að einfalda viðskiptavinum annarra lausna að skipta yfir. Notkun á Mind 42 er gjaldfrjáls þegar þetta er skrifað en væntanlega mun fyrirtækið þurfa að fá eitthvað fyrir snúð sinn þegar fram líða stundir.
Ég hef sagt það áður og stend við þau orð að netbundinn hugbúnaður hefur uppá að bjóða ýmsa kosti sem hefðbundin forrit eiga erfitt með að uppfylla. Mikilvægasti styrkleiki netbundins hugbúnaðar felst án efa í samskiptaþættinum og hvað hugarkort varðar þá er hann gríðarlega mikilvægur. Hugarkort eru öflug samvinnuverkfæri hvort sem þau eru teiknuð á blað, töflu eða unnin með aðstoð tölvutækninnar. En þegar hópur einstaklinga getur unnið við sama hugarkortið óháð staðsetningu og jafnvel tíma þá fyrst fæst algjörlega ný vídd í notkun þeirra.
Síðast en ekki síst þá hef ég stofnað nýja síðu á wikivef FB þar sem Hugarkortum eru gerð góð skil.


