Til hamingju með afmælið Powerpoint

Skrifað 24. June 2007
Engar athugasemdir frá lesendum

Það er ekki mikið um hátíðarhöld en Microsoft Powerpoint hugbúnaðurinn heldur upp á 20 ára afmæli sitt um þessar mundir. Það er heldur ekki á almanna vitorði að Microsoft var þróað af tveimur mönnum, þeim Robert Gaskins og Dennis Austin. Fyrsta útgáfan kom út árið 1987 fyrir Macintosh. Microsoft keypti svo Forethought fyrirtækið sem var á bak við hugbúnaðinn síðar það sama ár. Fyrsta Windows útgáfan af Powerpoint kom ekki út fyrr en þremur árum síðar, árið 1990.
Powerpoint hefur löngum verið gagnrýnt fyrir að einfalda og staðla svo framsetningu efnis og upplýsinga að innihaldið hverfi oft í litríkri umgjörðinni. Ég ætla ekki að hafa fleiri orð um það hér og nú en bendi á nokkra ágæta vefi sem hafa að geyma vönduð Powerpoint sniðmát sem hægt er að sækja án endurgjalds.


Related Post



Skráðu athugasemd

  • Í stuttu máli

    Í tilefni af vísindavöku 26. september 2008 efnir Rannís til teiknisamkeppni barna 6-9 og 10-12 ára. Þema keppninnar er “Hvernig hafa vísindin áhrif á daglegt líf mitt?”.
    Í tilefni af vísindavöku 26. september 2008 efnir Rannís til ljósmyndamkeppni meðal ungs fólks á aldrinum 13-18 ára. Efni myndanna skal vera “vísindin í daglegu lífi”.
    1.-3 september nk. stendur OECD/CERI fyrir tilviksathugun á upplýsingatækni á Íslandi (notkun stafræns námsefnis). Til landsins koma fimm sérfræðingar sem skoða ákveðin tilvik og þeir vilja endilega fá að ræða við kennara um hvernig þeir nota þessi tæki. Meira á vef 3F.
    Skólagjöld í opinberum menntaskóla eru orðin að veruleika segir Dagbjört Hákonardóttir í pistli í Vefritinu.
  • Gagn og gaman