Close

Svona gerum við

Námsefni

Google video + Powerpoint = Zentation

Zentation er ný og spennandi vefbundin þjónusta sem gerir notendum kleift að hlaða inn PowerPoint sýningum og tengja við Google Video myndskeið þannig að úr verður myndskeið með glærum. Zentation er kjörin leið til að birta fyrirlestra eða kennsluefni á Netinu.

Zentation er enn á betastigi en lofar góðu. Enn sem komið er virkar þjónustan einungis með myndskeiðum sem hýst eru á Google Video. Allt efni á Zentation.com vefnum er opið almenningi en samkvæmt upplýsingum á zentation.com er mögulegt að miðla sýningum þaðan á öruggan hátt.

Sjón er sögu ríkari og ég vil endilega nota tækifærið og benda ykkur á þennan frábæra fyrirlestur með Guy Kawasaki. Kawasaki var einn af starfsmönnum Apple sem var ábyrgur fyrir markaðssetningunni á Macintosh tölvunni árið 1984.

Zentation er ókeypis enn sem komið er en það gæti breyst þegar fram líða stundir.


Tengt efni

Skráðu athugasemd