Versta kvikmynd allra tíma?

Skrifað 05. July 2007
Flokkur: Almennt
Engar athugasemdir frá lesendum

plan9.jpgGoogle Video er hrein gullnáma fyrir áhugafólk um kvikmyndir, góðar jafnt sem slæmar. Hér verður reyndar sjónum beint að kvikmynd sem af mörgum er talin ein versta ef ekki alversta kvikmynd allra tíma. Nefnilega Plan 9 from Outer Space í leikstjórn Edward D. Wood jr. Plan 9 er kvikmynd sem vert er að horfa á einungis vegna þess hversu afskaplega léleg hún er.

Plan 9 from Outer Space var frumsýnd í júlímánuði 1959 sama ár og Ben Hur hlaut Óskarsverðlaunin sem besta kvikmyndin. Þar er heldur betur ólíku saman að jafna. Söguþráður myndarinnar er í stuttu máli sá að geimverur sjá sér þann kostinn vænstan að vekja upp þá dauðu til að stöðva mannkynið í að búa til gjöreyðingarvopn.

Sjón er sögu ríkari og ég hvet alla til að horfa á þetta einstaka verk. Að því loknu er um að gera að sækja sér á næstu leigu Ed Wood, mynd meistara Tim Burton um samnefndan leikstjóra Plan 9.


Tengt efni

Skráðu athugasemd

On the powers of time

    Af sama tagi

    Nýlega lesið

    Eldra efni