Close

Svona gerum við

Námsefni

Opnar lausnir – Frumherjarnir

netla_logo.gifÍ Netlu, vefriti Kennaraháskólans, má nú finna fyrsta hluta af þremur í greinaflokki eftir mig sem ég nefni Opnar lausnir. Í flokknum er fjallað um frjálsan og opinn hugbúnað og tekist á við þá spurningu hvaða hlutverki hann hafi að gegna í nútímaskólastarfi.

Í fyrsta hlutanum sem nefnist Frumherjarnir eru raktir helstu þættir úr sögu frjáls eða opins hugbúnaðar og kynntir til sögunnar þeir einstaklingar sem mest hafa mótað þróun hans. Í öðrum hluta verður fjallað um möguleika og mikilvægi frjáls og opins hugbúnaðar í akademísku umhverfi. Í þriðja og síðasta hluta verður greint frá þróunarverkefni innan Fjölbrautaskólans í Breiðholti þar sem undanfarin ár hefur verið gerð áhugaverð tilraun með innleiðingu netbundna námsumhverfisins Moodle við skólann.


Tengt efni

Skráðu athugasemd