Þann 24. júní sl. fór ég í fjölskylduferð í Lambafellsgjá (einnig nefnd Lambafellsklofi) í Krísuvík. Eins og nærri má geta var myndavélin með í för og líkt og venjulega þá færði ég myndirnar sem teknar voru í ferðinni yfir á Flickr til varðveislu og miðlunar. Fram til þessa væri sagan þar með sögð, en með tilkomu VoiceThread er ekkert einfaldara en að búa til lifandi myndasyrpu úr myndunum með því að birta þær á Netinu með texta og tali. Sjón er sögu ríkari.
Helsti kostur VoiceThread er hversu einfalt það er í notkun. Skráning er endurgjaldslaus og fljótleg. Allar aðgerðir fara fram á Netinu og hægt er að sækja myndir frá Flickr eða hlaða af tölvunni. Hljóðupptakan kom mér sérstaklega á óvart, þ.e. hversu gæðin voru góð. Auk þess að setja texta og tal við myndir er hægt að teikna á myndirnar með þar til gerðum penna, s.s. til að draga athyglina að ákveðnum hluta myndar. Hægt er að takmarka aðgengi að VoiceThread myndasyrpum, t.a.d. við fjölskyldu og kunningja eða birta öllum netverjum.
Þar með er ekki allt sagt. Innskráðir notendur geta nefnilega skráð eða hljóðritað athugasemdir við myndasyrpur. Þeir geta jafnvel teiknað inn á myndir með fyrrgreindum penna. Skoðið þessa syrpu og þá sjáið þið hvað ég á við.
VoiceThread er verkfæri sem má nota til margvíslegra hluta. Það er öflug viðbót við þjónustur eins og Flickr og frábært, skapandi tæki í skólastarfi. Voicethread er svo einfalt að nemendur á öllum skólastigum geta nýtt sér það án vandkvæða. Þarna er komið spennandi vettvangur fyrir kennara að fyrirlestra eða leggja inn námsefni.


