Tvær leiðir til að setja saman tímalínur og birta á vef

Skrifað 18. July 2007
Engar athugasemdir frá lesendum

stundaglas.jpgÉg get varla talist sérstakur áhugamaður um notkun tímalína í kennslu en veit að þær geta komið að góðum notum við ákveðnar aðstæður. Þegar ég hugsa til baka dettur mér helst í hug að áhugaleysi mitt stafi af ofnotkun þessa kennslutækis í sögukennslu þegar ég var nemandi í framhaldsskóla. Þær tímalínur sem hér verða kynntar til sögunnar eiga hins vegar fátt samnefnt með ljósritunum leiðinlegu sem sögukennarinn minn forðum notaði svo óspart.

Simile (Semantic Interoperability of Metadata and Information in unlike Environments) nefnist verkefni á vegum MIT háskólans þar sem m.a. er unnið að smíði sérhæfðs verkfæris til að setja saman og birta gagnvirkar tímalínur á vef. Allur hugbúnaður sem verður til hjá Simile er opinn (open source) og getur því hver sem vill sótt sér hann og nýtt að vild. Hér má sjá sýnishorn af tímalínu sem smíðuð er með aðstoð Simile tímalínusmiðsins. Hér er önnur.

Eins og sjá má á meðfylgjandi sýnishornum eru Simile tímalínurnar gagnvirkar og möguleikar þeirra í kennslu eru óneitanlega spennandi. Þegar kemur að smíði þeirra er hugbúnaðurinn hins vegar vegar ekkert sérstaklega notendavænn og krefst nokkurrar þekkingar á vefsíðugerð og XML. Ágætar leiðbeiningar um notkun má þó finna á vef Simile þannig að áhugasamir vefarar ættu hiklaust að láta slag standa. Þeir sem vilja eitthvað aðgengilegra og einfaldar í notkun ættu að kynna sér xTimeline.

xTimeline

xTimeline er all í senn netbundið verkfæri til að setja saman og birta gagnvirkar tímalínur og samfélag notenda sem deila verkum sínum ekki ósvipað og tíðkast meðal notenda YouTube. xTimeline er mun einfaldara í notkun en Simile hugbúnaðurinn fyrrnefndur og býr auk þess yfir kostum sem gera þessa ókeypis þjónustu sérlega áhugaverða í augum kennara. Líkt og myndskeið á YouTube er hægt að varpa tímalínum yfir á hvaða vef sem er, en það sem helst vekur áhuga minn er sá kostur að geta heimilað öðrum notendum að vinna með tímalínur sem ég hef skapað. Hér er á ferðinni ósvikin web 2.0 hugmyndafræði þar sem netbundinn hugbúnaðurinn er eins og umgjörð utan um samfélag notenda sem skapar innihaldið og miðlar sín á milli. Ekki sakar að tímalínurnar geta falið í sér myndir, myndskeið, tónlist og krækjur í aðra vefi. Í kennslu býður þessi kostur upp á fjölmarga möguleika á nýrri nálgun viðfangsefnisins og aukinni þátttöku og samvinnu nemenda. Kennarar geta t.a.m. stofnað tímalínur en látið nemendur um að fylla þær efni og þannig í sameiningu kortlagt sögulega viðburði, skáldsögur, líf einstakra manna eða hugmynda.

Hér fyrir neðan má sjá hvernig litríku lífi William Shakespeare er endurspeglað á xTimeline tímalínu. Athugið að hægt er að stilla stærðina á tímalínunni en hér er hún minnkuð töluvert til að passa á þennan vef.


Tengt efni

Skráðu athugasemd

On the powers of time

    Af sama tagi

    Nýlega lesið

    Eldra efni