Jing
Jing er nafnið á einfaldri en mjög sniðugri blöndu af Snagit og Camtasia hugbúnaðinum vinsæla sem Techsmith fyrirtækið gefur út. Jing var kynnt nýlega og á örugglega eftir að verða vinsæll meðal kennara og jafnvel kerfisstjóra.
Jing auðveldar gerð, hýsingu og miðlun á einföldum skjámyndum með skýringum í anda Snagit eða myndskeiðum ekki ósvipað og unnin eru í Camtasia. Jing býður ekki upp á alla eiginleika fyrrgreindra forrita en fyrir kennara sem þurfa á handhægu verkfæri að halda til að vinna leiðbeiningar eða útskýringar á fljótlegan hátt og koma til nemenda með sem minnstri fyrirhöfn þá er Jing nákvæmlega málið.
Hér fyrir neðan má sjá stutta skýringarmynd sem útskýrir betur en mörg orð hvernig Jing virkar. Takið eftir gula skrítna þríarma hringnum efst á skjánum, en þaðan er Jing kallað fram.

Jing hugbúnaðurinn er ókeypis (óvíst hvort hann verði það í framtíðinni) en skjámyndirnar og myndskeiðin eru hýst á Screencast.com vefnum (í eigum Techsmith) en áskrift að honum er gjaldskyld. Hægt er að sækja um 60 daga prufuáskrift til að reyna þjónustuna. Screencast.com vefurinn er að mínu mati veikasti hlekkurinn í þessari annars skemmtilegu samsetningu á hugbúnaði og netþjónustu þar sem hann er arfaslakur svo ekki sé sterkara til orða tekið. Jing býður reyndar einnig upp á staðværa vistun á myndum og myndskeiðum sem er ágætis kostur fyrir þá sem vilja geyma efni á eigin vél en vistar myndskeiðin á swf sniði (flash) og ég veit ekki til þess að YouTube og sambærilegar þjónustur samþykki það skráarform. Ég veit að það er ekkert tiltökumál að yfirfæra swf skrár á t.d. avi eða flv (flash video) snið en þar með einfaldleiki Jing fokinn út í veður og vind.
Jing er frábært verkfæri fyrir kennara í upplýsingatækni og kannski sérstaklega þá sem kenna í fjar- og dreifnámi. Jing getur örugglega komið sér vel fyrir kerfisstjóra og aðra sem aðstoða tölvunotendur þar sem það einfaldar hinum almenna notanda að senda skjámyndir til skýringa á vandamálum eða villum og kerfisstjórum að senda myndrænar skýringar til baka. Ég mun alveg örugglega nýta þetta forrit í minni kennslu enda koma oft upp tilvik þar sem ég þarf að setja saman og senda stuttar leiðbeiningar til nemenda. Ég mun áfram nota bæði Snagit og Camtasia hugbúnaðinn sem einnig kemur frá Techsmith og þá sérstaklega í viðameiri verkefnum og námsefnisgerð.
Ég vek athygli á að þegar þetta er skrifað þá er Jing í betaútgáfu og á væntanlega eftir að taka nokkrum breytingum áður en endanleg mynd kemst á forritið. Vonandi sér Techsmith sér hag í að endurbæta Screencast.com vefinn í leiðinni því eins og hann er núna þá er hann ekkert annað en dragbítur á þjónustu og hugbúnað fyrirtækisins.
p.s.
Makkamenn ættu að kynna sér Skitch sem er mjög sambærilegur hugbúnaður og Jing (ath. Jing er líka til fyrir makka), jafnvel enn betri.


