Close

Svona gerum við

Námsefni

ZoomIt – eins og hannað fyrir tölvukennara

staekkunargler.jpgZoomIt er glettilega handhægur hugbúnaður fyrir alla þá sem nota tölvu með Windows stýrikerfi til kynninga eða kennslu á hugbúnaði eða vefbundinni þjónustu. Eins og nafnið gefur til kynna þá hefur ZooIt það hlutverk helst að stækka allt sem á skjánum birtist en gerir notendum þar að auki kleift að skrifa og teikna yfir skjámyndina til frekari útskýringar.

ZoomIt má sækja án endurgjalds á Microsoft Technet vefinn. Forritið er ein keyrsluskrá (sótt á zip sniði) og til að virkja það verður að tvísmella á skránna. Hægt er að búa til flýtivísun á ZoomIt og setja í Startup möppuna í Windows þannig að forritið keyri sjálfkrafa upp í hvert sinn sem Windows er ræst.

Sjálfgefnar flýtivísanir í ZoomIt eru eftirfarandi (hægt er að skilgreina eigin samsetningar á flýtilyklum):

  • CTRL+1 Stækkar skjámyndina
    Hægt að nota skrunhnappinn á músinni til að stækka/minnka
  • Vinstri músarsmellur virkjar pennan
  • CTRL+2 Penninn virkjaður án þess að stækka skjámyndina
  • Hægri músarsmellur minnkar skjámyndina aftur í raunstærð
  • CTRL+T til að slá inn texta (ath. að smella fyrst á vinstri músarhnapp)
    Ath. vandamál með ísl. bókstaf

Ég mæli með Zoomit fyrir tölvukennara og auðvitað aðra þá sem sýna hugbúnað eða vefi.


Tengt efni

  • Ekkert fannst

Skráðu athugasemd