Helsti kostur Comic Life umfram sambærileg forrit (þau eru nokkur til) felst í einfaldleikanum og notendaviðmótinu. Það er ótrúlega einfalt að vinna í Comic Life enda er ég viss um að þessi hugbúnaður hentar vel bæði í leik- og grunnskólum. Comic Life er einnig ódýr hugbúnaður og t.a.m. kostar Mackintosh útgáfan einungis $24.95 eða um það bil 1500 kr. íslenskar á gengi dagsins í dag.

Comic Life er enn í betaútgáfu (beta 2) og má því fastlega búast við að endanleg útgáfa komi á markaðinn síðar á þessu ári. Hægt er að sækja sér Windows útgáfuna á vef Plasq, en athugið að hún rennur út 1. september 2007. Áhugasamir geta svo kynnt sér efni unnið með ComicLife sem er til sýnis á Flickr. Ég er ennþá að leika mér með þetta forrit og á örugglega eftir að skrifa meira um það síðar.



Langar í Pícasa 3 á Íslensku