Wellcome myndasafnið aðgengilegt á Netinu

Skrifað 06. August 2007
Flokkur: Almennt
Engar athugasemdir frá lesendum

Þann 15. júní sl. opnaði Wellcome myndasafnið dyr sínar netverjum og geta nú allir sem áhuga hafa sótt þangað fjölbreytt úrval myndefnis sem snertir sögu mannkyns og líf- og læknisfræði.

geysir.jpg

Myndirnar eru aðgengilegar á netinu á jpg sniði samkvæmt leyfisskilmálum Creative Commons, nánar tiltekið Creative Commons Attribution, Non-commercial Licence 2.0, sem heimilar afritun dreifingu og birtingu efnis svo lengi sem heimildar er getið og notkunin er ekki í hagnaðarskyni.

Wellcome safnið er kærkomin uppspretta mynda fyrir bæði nemendur og kennara og þar má finna myndir af öllu milli himins og jarðar, s.s. teikningum af Florence Nightingale og Charles Darwin í gerfi apa. Leitarorðið “Iceland” skilaði meira að segja nokkrum niðurstöðum og þar á meðal myndinni af Geysi hér að ofan.

Athugið að á Wikivef Fjölbrautaskólans í Breiðholti er að finna ágætt yfirlit yfir myndasöfn sem henta vel bæði kennurum og nemendum.


Tengt efni

Skráðu athugasemd

Dagatalið – verkefni í ritvinnslu

    Af sama tagi

    Nýlega lesið

    Eldra efni