Loksins er hægt að birta glærusýningar á Slideshare með tali og tónum

Skrifað 08. August 2007
Flokkur: Almennt
Ein athugasemd frá lesendum

slideshare_logo.gifSlideShare hefur kynnt til sögunnar nýjan og margumbeðinn eiginleika sem felst í því að tengja saman og samræma glærusýningu og hljóðskrá þannig að úr verði ein heild. Nú er því hægt að hýsa á SlideShare og varpa þaðan á aðra vefi efni  sem unnði er í PowerPoint eða Impress (Open Office) með tali og tónum, s.s. fyrirlestra eða kennsluefni. Nýjungin hefur fengið nafnið Slidecasting.

Fjöldi sýnishorna má finna nú þegar á SlideShare.net vefnum og væntanlega munu notendur SlideShare þjónustunnar bæta fleirum við.

Ég skrifaði nýlega um svipaða þjónustu sem nefnist VoiceThread og einnig má benda á Zentation sem byggir á sömu hugmynd.


Tengt efni

1 athugasemd við “Loksins er hægt að birta glærusýningar á Slideshare með tali og tónum”

  1. Listatorg - Netskrif » Greinasafn » Slideshare - Til að miðla glærusýningum skrifar:

    [...] Ýmsir hafa kynnt þessa ágætu vefþjónustu hér á landi, m.a. Salvör Gissurardóttir, Sigurður Fjalar Jónsson og Hjálmar Gíslason sem heldur úti WordPress-vef ásamt starfsmönnum Símans. Sýnidæmi [...]

Skráðu athugasemd