“INST 7150 Introduction to Open Education” verður kenndur á Netinu og er opinn öllum sem áhuga hafa. Nemendur geta tekið áfangann til eininga en þurfa þá að finna kennara við eigin skóla sem er tilbúinn að hafa umsjón með náminu og taka á móti einkunn frá Wiley. Nemendur geta einnig tekið áfangann einingarlausan ef þannig má að orði komast og þurfa þeir þá einungis að bæta nafni sínu við áfangalýsinguna sem er á wiki sniði og má finna hér.
David Wiley er einna þekktastur fyrir störf sín á vettvangi opins náms. Hann er m.a. höfundur hugtaksins Open Content (opið efni) og skapaði fyrsta opna höfundarréttarleyfið sem ekki var sérstaklega ætlað hugbúnaði árið 1998. Við erum því að tala um áfanga í umsjá eins helsta frumkvöðuls á sviði opins náms sem gerir þetta allt saman enn meira spennandi.
Persónulega þá finnst mér opið nám er heillandi viðfangsefni enda tengist það fullkomlega helstu hugarefnum mínum, þ.e. opnum hugbúnaði, höfundarréttarmálum, nýsköpun og notkun upplýsingatækninnar í námi og kennslu. Ég hef því skráð mig til þátttöku í áfanganum og hlakka mikið til að byrja.
p.s.
Það er vel þess virði að fylgjast með skrifum David Wiley á blogginu Iterating Toward Openness. Um leið og ég skrifa þessi orð velti ég því enn einu sinni fyrir mér hvers vegna í ósköpunum íslenskir kennarar, ekki síst á háskólastigi, blogga ekki. Verð að muna að skrifa meira um það síðar.


