Sérhæfður hugbúnaður eins og Boardmaker og Clicker er víðsvegar notaður í skólastarfi hér á landi. Hann hentar vel í sérkennslu á öllum skólastigum en er einnig nýttur í almennu námi í leikskólum og yngri bekkjum grunnskólans. Clicker og Boardmaker eru mjög spennandi verkfæri, vönduð og vel þekkt, en til þess að nota þau markvisst er mikilvægt að læra á þau. Og þar stendur oft hnífurinn í kúnni. Ég hef staðið fyrir námskeiðum í Clicker í samstarfi við Skólavörubúðina og ég veit að Sigrún hjá Tölvumiðstöð fatlaðra hefur einnig kennt á bæði Clicker og Boardmaker. Til skamms tíma stýrði ég námskeiði við KHÍ sem hét “Upplýsingatækni með fötluðu fólki” en mér skilst að það verði ekki lengur í boði heldur einhverskonar blanda tveggja námskeiða undir heitinu “Stafræn gjá og tölvur í starfi með fötluðum” (hét áður
Stafræn gjá eða upplýsingasamfélag fyrir alla?). Námskeiðið verður í umsjá Salvarar Gissurardóttur og miðað við námskeiðslýsinguna þá verður öllum áherslum sem lagðar voru í “Upplýsinga” námskeiðinu hent fyrir róða og á ég þar helst við kennslu í Clicker og Boardmaker.
Málin standa því þannig að áhugasamir kennarar geta sótt til Sigrúnar í TMF og til Skólavörubúðarinnar hafi þeir áhuga á námskeiðum í annað hvort Boardmaker og Clicker. Það er auðvitað hið besta mál. Á hinn bóginn eru kennarar sem nýta þessi forrit mjög dreifðir. Hvað sérkennsluna varðar þá er kannski fámennur hópur kennara sem nýtir þau og stundum jafnvel einn kennari. Þessir kennarar eru einangraðir og hafa lítil tækfæri til að komast á skipulögð námskeið þar sem þau eru einungis haldin þegar nógu stór hópur næst saman.
Netbundnu námskeiðunum í opna hugbúnaðinum Moodle er ætlað að breyta þessu. Og þeim er einnig ætlað það hlutverk að vera samfélag notenda, annað hvort Boardmaker eða Clicker og vonandi fleiri forrita þegar fram líða stundir. Þessi samfélagsmyndun er mjög mikilvæg að mínu mati. Í fyrsta lagi er svo gott þegar við fáum tækifæri til samskipta og tækifæri til að læra hvert af öðru. Í öðru lagi verður verkefnavinna nemenda á námskeiðinu hýst í Moodle og þannig gerð aðgengileg öllum þátttakendum. Með þessu vonast ég til þess að þátttakendur námskeiðanna muni í sameiningu skapa stórt safn námsefnis sem unnið er í þeim hugbúnaði sem verið er að kenna á, nefnilega Boardmaker og Clicker. Kannski er þetta einn mikilvægasti þátturinn þegar svona hugbúnaður er annars vegar, þ.e. hugbúnaður sem kennarar nota til að búa til verkefni fyrir nemendur ekki síður en leggja þau fyrir.
Ég mun bjóða öllum þátttakendum á málstofu námstefnunnar sérstök kjör að umræddu Clicker námskeiði. Ég áætla að opna námskeiðið í byrjun október og munu þátttakendur málstofunnar fá ókeypis aðgang fram til áramóta. Annars mun þátttaka vera með áskriftarfyrirkomulagi. Ég geri ráð fyrir ársáskrift sem gæti kostað eitthvað á bilinu 1500 til 2000 kr. Allar nánari upplýsingar um námskeiðin fáið þið á málstofu E þannig að það verður vel þess virði að láta sjá sig.
Námsstefnan Leiðir til árangurs er haldin að frumkvæði faghóps leikskólasérkennara og í samvinnu við FÍS, FL, KHÍ, HA og TMF.


