Af góðum afritum og slæmum

Skrifað 19. August 2007
Engar athugasemdir frá lesendum

Good copy - Bad copy er glæný og vönduð dönsk heimildarmynd þar sem fjallað er um listsköpun og höfundarrétt. Rauður þráður myndarinnar er hinn svo kallaði “Rip mix burn” kúltúr sem ef til vill mætti útfæra á íslensku sem rífa, blanda brenna og snýst um þá listsköpun sem felst í að blanda á skapandi hátt annarra verkum og eigin þannig að úr verði sjálfstætt listaverk. Upphaflega vísa orðin þrjú í þá iðju að afrita tónlist af geisladisk, blanda annarri tónlist og loks brenna á nýjan disk.

Í myndinni er m.a. rætt við tónlistarmanninn Brian Joseph Burton sem betur er þekktur undir nafninu Danger Mouse og varð frægur að endemum árið 2004 fyrir sköpunarverkið The Gray Album sem var fersk og kolólögleg samsuða af hvíta albúmi Bítlanna og Svarta albúmi rapparans Jay-Z. The Gray album var ekki ætlað til sölu eða hefðbundinnar dreifingar í tónlistarverslunum en rataði á Netið og náði þar ótrúlegum vinsældum. Hvorki Bítlarnir né Jay-Z græddu eyri á uppátækinu og Brian Burton mátti þakka fyrir að sleppa við kostnaðarsama lögsókn fyrir uppátækið. Á endanum varð þó framtakið til að vekja eftirminnilega athygli á honum sem hæfileikaríkum tónlistamanni og leiddi til þess að hann fékk öllu löglegri tækifæri á þeim vettvangi. Árið 2005 var hann útnefndur til Grammy verðlauna fyrir þátt sinn í Gorillaz plötunni Demon Days. Þrátt fyrir tilraunir Sony og EMI útgáfurisanna og rétthafa tónlistar Bítlanna til að stöðva dreifingu The Gray album á Netinu er enn hægt að sækja þetta óumdeilda meistaraverk (líklegast besta plata sem aldrei hefur verið gefin út) án mikillar fyrirhafnar.

Techno Brega fær einnig verðskuldað svigrúm í myndinni en þar er á ferðinni sjóðheit brasilísk tónlistarstefna sem endurspeglar vel hvað felst í því að rífa, blanda og brenna tónlist. Techno Brega er blanda af hefðbundnu vestrænu vinsældarpoppi, fjörugri og seiðandi salsatónlist eða sterkum danstakti sem spiluð er á vinsælum útidansleikjum og seld ódýrt.

Sá er hins vegar gallinn á gjöf Njarðar að tónlistarsköpun eins og Techno Brega, er fullkomlega ólögleg samkvæmt laganna bókstaf. Að mati þeirra sem stunda þessa iðju er hins vegar erfitt ef ekki ómögulegt að hlýða lagaboðunum. Í fyrsta lagi yrði kostnaðurinn svo óheyrilegur að hann myndi útliloka alla sköpun og í öðru lagi er nánast óhugsandi fyrir einstaka listamenn að hafa uppi á öllu leyfishöfum tónlistarinnar sem blandað er saman og vinna með á þennan hátt. Lagaumhverfið vinnur því markvisst og mjög ákveðið gegn skapandi notkun tónlistar og kvikmynda að mati þeirra sem þessa iðju stunda. Í heimildarmyndinni er reyndar fullyrt að breytingar á bandarískum höfundarréttarlögum síðustu 12 ár hafi fyrst og fremst orðið til þess að vernda mjög afmarkaða hagsmuni tónlistarrisa á borð við fyrrnefnd fyrirtæki Sony og EMI eða Disney og aðra sem framleiða og markaðssetja kvikmyndir og efni í sjónvarp.

Kvikmyndaiðnaðurinn hefur ekki farið varhluta af þeim breytingum sem eru að verða á sköpun og dreifningu afþreyingarefnis í dag. Í myndinni er að finna sérstaklega áhugaverða umfjöllun um kvikmyndagerð í Nígeríu sem samkvæmt heimildum höfunda er sú umfangsmesta í heiminum í dag. Nígeríumenn, þeir sem rætt er við í myndinni, telja sig frumkvöðla í stafrænni kvikmyndagerð og langt á undan kollegum sínum í Hollywood. Það er einkar athygliverð yfirlýsing og sérstaklega í ljósi þess að í Nígeríu finnast engin höfundarréttarlög.

Þegar við horfum á heimildarmynd á við “Good copy - Bad copy” er ágætt að hafa það í huga að lög um höfundarrét voru ekki sett til þess að hindra fólk í að nota eða njóta verk listamanna - heldur nota þau á löglegan hátt. Ég get alveg tekið undir þá skoðun að listamenn þurfi á höfundarrétti að halda, en hann verður líka að vera innan skynsamlegra marka okkur öllum til hagsbóta. Hér er upplýst umræða afar mikilvæg en því miður hefur mjög skort á þá umræðu hér á landi sem og víða erlendis.

Þegar þetta er skrifað er danska ríkissjónvarpið eitt um að hafa keypt sýningarrétt á heimildarmyndinni “Good Copy - Bad copy”. Ég er sannfærður um að hún er gott innlegg í umræðu um höfundarrétt og menningu og væri vel ef Ríkissjónvarpið eða Stöð 2 sæju sér fært að þýða hana og sýna hér á landi. Eitt er víst að ekki veitir af upplýstri umræðu um þessi mál sem einskorðast ekki við þröngan hagsmunaramma risavaxinna, fjölþjóðlegra tónlistardreifenda.

Bad Copy Good Copy er gefin út með opnu leyfi og aðgengileg öllum sem áhuga hafa á Google Videos vefnum.


Related Post



Skráðu athugasemd

  • Í stuttu máli

    Í tilefni af vísindavöku 26. september 2008 efnir Rannís til teiknisamkeppni barna 6-9 og 10-12 ára. Þema keppninnar er “Hvernig hafa vísindin áhrif á daglegt líf mitt?”.
    Í tilefni af vísindavöku 26. september 2008 efnir Rannís til ljósmyndamkeppni meðal ungs fólks á aldrinum 13-18 ára. Efni myndanna skal vera “vísindin í daglegu lífi”.
    1.-3 september nk. stendur OECD/CERI fyrir tilviksathugun á upplýsingatækni á Íslandi (notkun stafræns námsefnis). Til landsins koma fimm sérfræðingar sem skoða ákveðin tilvik og þeir vilja endilega fá að ræða við kennara um hvernig þeir nota þessi tæki. Meira á vef 3F.
    Skólagjöld í opinberum menntaskóla eru orðin að veruleika segir Dagbjört Hákonardóttir í pistli í Vefritinu.
  • Gagn og gaman