Close

Svona gerum við

Námsefni

Glærur og vefslóðir frá vel heppnaðri námsstefnu

Námsstefnan Leiðir til árangurs var haldin föstudaginn 17. ágúst sl. í húsnæði Kennaraháskólans að frumkvæði faghóps leikskólasérkannara og í samvinnu við FÍS, FL, KHÍ, HA og TMF. Óhætt er að segja að mjög vel hafi tekist til og fjöldi þátttakenda vel yfir björtustu væntingum.

Þeir sem ekki sáu sér fært að mæta í Kennaraháskólann á föstudaginn var geta nú skoðað glærur frá fyrirlestrum og vefslóðir sem fyrirlesarar bentu á í erindum sínum. Glærurnar eru allar aðgengilegar á Slideshare vefnum og er það að mínu viti í fyrsta skipti sem þetta fyrirkomulag er haft á í ráðstefnu hér á landi. Vefslóðirnar má nálgast hér.


Tengt efni

Skráðu athugasemd