Close

Svona gerum við

Námsefni

Vantar þig teikn?

22 Aug Uncategorized | Athugasemdir
Teikn (e. icons) eru smáar táknmyndir sem m.a. eru notaðar á vefsíðum, í stýrikerfum og hnappastikum í hvers kyns hugbúnaði. Víðsvegar um Netið má finna vönduð söfn af teiknum sem gefin eru út samkvæmt opnum leyfisskilmálum og því heimilt að nýta með ákveðnum fyrirvörum. Nýlega var opnuð sérhæfð leitarvél sem nefnist Iconfinder og leitar einungis eftir teiknum og aðeins teiknum sem gefin eru út samkvæmt opnum leyfum.

iconfinder.jpg

Iconfinder er að finna á vefslóðinni www.iconfinder.net og notkun er einföld, þ.e. einungis þarf að slá inn leitarorð. Teiknin er hægt að sækja á PNG sniði í nokkrum stærðum hverja mynd. Að sjálfsögðu hef ég bætt Inconfinder við ört vaxandi safn leitarvéla og myndabanka sem er að finna á wikivef FB.


Tengt efni

Skráðu athugasemd