Segjum nei við OOXML!

Skrifað 25. August 2007
Ein athugasemd frá lesendum

Að frumkvæði Microsoft á Íslandi hefur verið boðað til opins undirbúningsfundar um stofnun tækninefndar um íslenska þátttöku í JTC1 sem er samstarfsnefnd alþjóðlegu staðlasamtakanna ISO og Alþjóða raftækniráðsins IEC um stöðlun í upplýsingatækni.

Á fundinum verður:

  • Kynnt tillaga að stofnun tækninefndar hagsmunaaðila um íslenska þátttöku í ISO/IEC JTC1 og að Staðlaráð sæki þar um stöðu virks þátttakenda.
  • Umfjöllun og hugsanleg afstaða til ISO/IEC DIS 29500 sem er frumvarp að staðli um skráarsnið, nú í frumafgreiðslu hjá JTC1 (Open XML).
  • Tímasettur stofnfundur JTC1 tækninefndar FUT reynist það vilji fundarins.

Það er mikilvægt að gera sér grein fyrir þeirri atburðarrás sem nú er að fara af stað. Málið snýst um Office Open XML (OOXML) staðalinn sem Office 2007 hugbúnaðurinn nýtir og Microsoft rær nú öllum árum að verði samþykktur sem ISO staðall. Nú þegar hefur ODF staðllinn sem m.a. Open Office hugbúnaðarsafnið nýtir fengið þessa stöðu sem er þyrnir í augum Microsoft þar sem um samkeppnisaðila er að ræða. Þess má geta að Microsoft kaus að styðja ekki ODF staðalinn í Office 2007 og sýndi þar með berlega afstöðu sína, sem kom s.s. engum á óvart.

Nú er Ísland er ekki beinn aðili að samþykktarferli staðalsins en með frumkvæði sínu hyggst Microsoft á Íslandi að leggja sitt af mörkum til þess að svo verði og náttúrulega með það í huga að tryggja að Open XML (OOXML) staðallinn verði samþykktur. Til þess þarf Staðlaráð Íslands í fyrsta lagi að sækja um stöðu virks þátttakanda í JTC1 og í öðru lagi segja já við OOXML staðlinum. Auglýstur fundur staðlaráðs snýst um hið fyrrgreinda og Microsoft liggur mikið á því tíminn er að renna frá þeim.

Nú eru afar skiptar skoðanir um ágæti OOXML staðal Microsoft svo ekki sé dýpra tekið í árinni og mjög á brattann að sækja fyrir Microsoft að sannfæra hagsmunaaðila um kosti hans og tilgang. Microsoft leggur áherslu á samhæfni við eldri skjalasnið og þá fyrst og fremst eldri Microsoft hugbúnað. Þeir benda réttilega á mikilvægi þess að hugbúnaður geti lesið gömul skjöl sem vistuð voru í forritum eða útgáfum forrita sem enginn notar lengur. Andstæðingar OOXML segja staðalinn hins vegar ekkert annað en illa dulbúna aðför að opnum stöðlum fyrir almennan notendahugbúnað og einungis til þess gerður að viðhalda markaðslegum yfirburðum og áframhaldandi kverkataki Microsoft á samkeppnisaðilum. Ég hallast að því síðarnefnda.

Hvers vegna ber okkur að segja nei við OOXML?

  • Að mínu viti er ekki ráðlegt að hafa tvo staðla á þessu sama sviði sem munu þá keppa hvor við annan. Markmið með stöðlum er ekki síst samhæfni og verði OOXML staðallinn samþykktur verður það úr sögunni. Við höfum þegar staðal á þessu sviði, þ.e. ODF, og við ættum að einbeita okkur að honum.
  • OOXML er allt of flókinn og lokaður staðall. Skjalið sem lýsir honum er 6000 blaðsíður! Hann er lokaður vegna þess að hann vísar í aðgerðir í eldri Microsoft hugbúnaði sem enginn veit hvernig nákvæmlega á að útfæra. Þetta atriði verður væntanlega til umræðu á fundinum á þriðjudaginn.
  • OOXML er það flókinn og það tengdur Microsoft hugbúnaði að það mun enginn geta útfært hann 100% nema Microsoft. Því miður er það nokkuð ljóst að einmitt það er tilgangur Microsoft að skapa staðal sem einungis þeir sjálfir munu geta útfært.
  • Augljósir vankantar OOXML eru svo margir og þess eðlis að taki Ísland þátt í atkvæðagreiðslunni þá getum við aldrei samþykkt hann sem opinn ISO staðal. Samkvæmt kosningareglunum má einungis gefa jáyrði við tillögunni ef enginn vafi leikur á því að staðallin sé laus við alla tæknilega örðugleika (National Bodies should choose this ONLY IF the standard is free of known technical errors. heimild)
  • Með þröngan tímaramma í huga og mjög skiptar skoðanir hagsmunaaðila og sérfræðinga um ágæti OOXML er þó vel hugsanlegt að Ísland taki virkan þátt í starfi JTC1 en kjósi ekki um tillöguna heldur skili inn athugasemdum. Gert er ráð fyrir þeim valkosti (þ.e. abstain) fyrir þjóðir sem búa ekki yfir nægri tæknilegri þekkingu á þessum vettvangi, hafa ekki nægan tíma til að meta staðalinn (þetta eru 6000 blaðsíður sem þarf að fara yfir) eða ná ekki saman um hvernig skuli greiða atkvæði.

Fundurinn verður haldinn að Laugarvegi 178 miðvikudaginn 29. ágúst 2007, kl. 15:00 til 16:30.

Þau sem hyggjast mæta á fundinn þann 29. ágúst eru beðin að senda tölvupóst til Guðbjargar Björnsdóttur fyrir þriðjudaginn 28. ágúst: gudbjorg@stadlar.is


Related Post



1 athugasemd við “Segjum nei við OOXML!”

  1. Brjálaður Anarkisti » Blog Archive » Fundur skrifar:

    [...] Ég er að flýta mér á fund hjá Staðlaráði. Oft var þörf en nú er nauðsyn, sjá http://www.sfjalar.net/2007/08/25/segjum-nei-við-ooxml/ [...]

Skráðu athugasemd

  • Í stuttu máli

    Í tilefni af vísindavöku 26. september 2008 efnir Rannís til teiknisamkeppni barna 6-9 og 10-12 ára. Þema keppninnar er “Hvernig hafa vísindin áhrif á daglegt líf mitt?”.
    Í tilefni af vísindavöku 26. september 2008 efnir Rannís til ljósmyndamkeppni meðal ungs fólks á aldrinum 13-18 ára. Efni myndanna skal vera “vísindin í daglegu lífi”.
    1.-3 september nk. stendur OECD/CERI fyrir tilviksathugun á upplýsingatækni á Íslandi (notkun stafræns námsefnis). Til landsins koma fimm sérfræðingar sem skoða ákveðin tilvik og þeir vilja endilega fá að ræða við kennara um hvernig þeir nota þessi tæki. Meira á vef 3F.
    Skólagjöld í opinberum menntaskóla eru orðin að veruleika segir Dagbjört Hákonardóttir í pistli í Vefritinu.
  • Gagn og gaman