Stál í stál á opnum fundi Staðlaráðs

Skrifað 30. August 2007
Engar athugasemdir frá lesendum

Mjög góð þátttaka var á opnum fundi staðlaráðs þar sem til umræðu var annars vegar stofnun tækninefndar í upplýsingatækni og hins vegar umfjöllun og hugsanleg afstaða til ISO/IEC DIS 29500 sem er frumvarp að staðli um skráarsnið, nú í frumafgreiðslu hjá JTC. Á fundinum var samþykkt stofnun tækninefndar, en þegar kom að umfjöllun um ISO/IEC DIS 29500, þ.e OOXML staðal Microsoft, mættust hins vegar stálinn stinn. Ef eitthvað er að marka andstöðuna við OOXML sem fram kom á fundinum er fullvíst að staðlaráð, sem fer með atkvæði Íslands á vettvangi ISO, getur aldrei greitt atkvæði með staðlinum fari ráðið að eigin starfsreglum.

Samkvæmt 2. grein starfsreglna Staðlaráðs Íslands ber Staðlaráði að hafa að leiðarljósi að starf þess sé íslensku atvinnulífi, stjórnvöldum, neytendum og umhverfinu til hagsbóta. Á fundinum lögðu fulltrúar Staðlaráðs ennfremur mikla áherslu á mikilvægi þess að þeim bæri að taka tillit til sem víðustu hagsmuna í því skyni að tryggja breiða samstöðu um ákvarðanir ráðsins. Mikilvægi þessa þáttar verður ekki ofmetið því niðurstaða Staðlaráðs er afstaða Íslands á alþjóðavettvangi.

Höfum eftirfarandi í huga. Fundurinn þann 29. ágúst var haldinn að frumkvæði Microsoft á Íslandi og það var ekki farið leynt með þá fyrirætlan fyrirtækisins að tryggja jáyrði Íslands í atkvæðagreiðslunni sem sker úr um hvort OOXML verði ISO staðall. Og athugið að atkvæði Íslands á þessum vettvangi hefur nákvæmlega jafn mikið vægi og atkvæði annarra þjóða. Ráðagerð Microsoft er augljós og hún er sem hér segir. Í fyrsta lagi að fá því framgengt að Ísland taki þátt í atkvæðagreiðslunni um OOXML með því að sjá til þess að tækninefnd verði stofnuð innan Staðlaráðs Íslands. Það skref var tekið á fundinum í gær. Í öðru lagi að tryggja að Ísland greiði atkvæði með OOXML. Þar stendur hnífurinn í kúnni.

Í 16. grein starfsreglna Staðlaráðs segir að jafnan skuli þess gætt “… að þeir sem taka þátt í alþjóðlegu staðlasamstarfi á vegum ráðsins leitist
við að tryggja að fullnægjandi sammæli sé innanlands um afstöðu til mála á dagskrá.” Í 23. greininni segir einnig “Við skipan nefnda skal þess gætt að í þeim sitji fulltrúar sem víðtækastra hagsmuna á sviðinu. Eftir atvikum skal leitast við að í þeim sitji fulltrúar framleiðenda, seljenda, neytenda, rannsóknaraðila og stjórnvalda.” Skoðum þessar reglur aðeins nánar.

Samkvæmt 16. greininni ber Staðlaráði að tryggja fullnægjandi sammæli innanlands um afstöðu til mála á dagskrá. Hugtakið “fullnægjandi” er ekki útskýrt nánar en með hliðsjón af orðum starfsmanna ráðsins á fundinum í gær er augljóst að tilgangur þeirra er að tryggja sem víðtækasta samstöðu allra hlutaaðeigandi aðila. Í 23. greininni er þessi hugsun styrkt enn betur með því að leitast eftir að raddir sem flestra hagsmunaaðila fái að heyrast og hafi vægi í umræðunni sem grundvallar ákvarðanatökuna. Þetta eru lykilatriði sem gegnsýra alla starfsemi Staðlaráðs og reyndar alla hugsunina á bak við stöðlun og staðla sem eiga jú að einfalda okkur lífið ekki satt?

Miðað við þá afgerandi mótstöðu sem OOXML mætti meðal fundargesta í gær, þeirra sem tala máli frjáls- og opins hugbúnaðar, er deginum ljósara að stór og afar mikilvægur hópur hagsmunaaðila hefur og mun mæla gegn OOXML og mun aldrei sætta sig við jáyrði Íslands í væntanlegri atkvæðagreiðslu. Andstaða þeirra byggir á faglegum rökum sem víðsvegar erlendis hafa orðið til þess að þjóðir hafa nú þegar sagt nei við OOXML. Þar með getur Staðlaráð samkvæmt eigin starfsreglum ekki gert annað en mælt gegn tillögunni eða haldið sig til hlés við atkvæðagreiðsluna. Um þetta verður ekki deilt.

Mótleikur Microsoft

Staðlaráði Íslands ber skylda til þess að mæla gegn ISO stöðu OOXML samkvæmt eigin starfsreglum vegna þess að hagsmunaaðilar íslenskir munu ekki komast að fullnægjandi sammæli um afstöðu. Þetta er ekki ásættanleg niðurstaða fyrir Microsoft og alls ekki það sem lagt var upp með þar innandyra geri ég ráð fyrir. Það er því aðeins ein leið fær fyrir Microsoft á Íslandi ætli þeir sér að tryggja íslenskt já í endanlegri atkvæðagreiðslu um staðalinn. Sú leið felst í því að þagga niður í rödd frjálsa og opna hugbúnaðarsamfélagsins á Íslandi sem er einmitt það sem þeir munu reyna. Ég fullyrði að starfsmenn Microsoft á Íslandi mun gera allt sem í þeirra valdi stendur til að sannfæra Staðlaráð og hlutaaðeigandi aðila um að fórna verði minni hagsmunum fyrir meiri eins og þeir gætu hugsanlega orðað það, þ.e. að niðurstaða nefndarinnar verði að ráðast af viðskiptalegum hagsmunum íslenskra fyrirtækja og stofnana sem að þeirra mati eru nátengdir notkun á Microsoft Office hugbúnaði og skjalasniði sem tengist honum í fortíð, nútíð og væntanlega ókominni framtíð. Rökin halda að vísu ekki vatni en það er önnur saga.

Þann 2. september nk. fer fram atkvæðagreiðsla þar sem ræðst hvort OOXML staðallinn verðiur yfirleitt tekinn til nánari umfjöllunar og endanlegrar atkvæðagreiðlu hjá ISO. Ég bíð spenntur eftir niðurstöðu þeirra kosninga. Ég bíð líka spenntur eftir að sjá hvernig tækninefnd Staðlaráðs verður skipuð og hvaða fyrirtæki, hvaða hagsmunaaðilar koma til með að eiga þar fulltrúa. Eitt vil ég þó segja hvernig sem nefndin verður skipuð. Staðlaráð mun bíða mikla hnekki ef ákveðið verður að hunsa hið frjálsa og opna hugbúnaðarsamfélag á íslandi og greiða atkvæði í nafni okkar Íslendinga með OOXML staðlinum. Það mun hins vegar ekki gerast.


Tengt efni

Skráðu athugasemd

Dagatalið – verkefni í ritvinnslu

    Af sama tagi

    Nýlega lesið

    Eldra efni