Good copy – Bad copy er glæný og vönduð dönsk heimildarmynd þar sem fjallað er um listsköpun og höfundarrétt. Rauður þráður myndarinnar er hinn svo kallaði “Rip mix burn” kúltúr sem ef til vill mætti útfæra á íslensku sem rífa, blanda brenna og snýst um þá listsköpun sem felst í að blanda á skapandi hátt ...
Ég verð með innlegg á námsstefnunni Leiðir til árangurs sem haldin verður þann 17. ágúst nk. í Kennaraháskóla Íslands. Á námsstefnunni verður fjallað um það helsta sem er í boði á sviði kennslu og kennslugagna fyrir leikskóla og yngsta stig grunnskóla með sérstakri áherslu á sérkennslu. Ég mun fjalla um opnar lausnir í skólastarfi og ...
Það er fullkomin tímasóun að velta vöngum yfir ólíkum námsstílum (learning styles) nemenda segir prófessorinn Susan Greenfield við Oxford háskóla.
David A. Wiley, dósent við ríkisháskólann í Utah og stjórnandi Center for Open and Sustainable Learning stofnunarinnar við sama skóla, birti fyrir stuttu drög að nýjum áfanga sem hann nefnir “INST 7150 Introduction to Open Education”. Áfangaheitið mætti þýða á íslensku sem “Inngangur að opnu námi” og satt best að segja þá líst mér vel ...
SlideShare hefur kynnt til sögunnar nýjan og margumbeðinn eiginleika sem felst í því að tengja saman og samræma glærusýningu og hljóðskrá þannig að úr verði ein heild. Nú er því hægt að hýsa á SlideShare og varpa þaðan á aðra vefi efni sem unnði er í PowerPoint eða Impress (Open Office) með tali og tónum, ...
Þann 15. júní sl. opnaði Wellcome myndasafnið dyr sínar netverjum og geta nú allir sem áhuga hafa sótt þangað fjölbreytt úrval myndefnis sem snertir sögu mannkyns og líf- og læknisfræði.
Getur verið að Síðasta kvöldmáltíð da Vincis innihaldi falda mynd af konu og barni?
Athugasemdir