Close

Svona gerum við

Námsefni

September, 2007  // Færslur birtar íSeptember, 2007

Moodle er málið

Moodle er málið

Moodle fær glæsilegan vitnisburð í spánnýrri könnun ElearningGuild þar sem m.a. var reynt að meta ánægju notenda með netbundin námsumhverfi. Þátttakendur í rannsókninni voru rúmlega 2300. Í rannsókninni fær Moodle hugbúnaðurinn mun betri dóma en aðrar og dýrkeyptari lausnir sem innleiddar hafa verið m.a. við íslenska skóla. Hér má nefna bæði Angel og Blackboard/WebCT. [Translate]

Lesa meira...

Rissað og skissað með Sketchcast

Rissað og skissað með Sketchcast

Sketchcast er netbundin þjónusta sem býðurnotendum upp á skemmtilega leið til þess að setja saman og birta einfaldar skissur með eða án tals á hvaða vef sem er. [Translate]

Lesa meira...

Prufukeyrsla á Joomla 1.5

Prufukeyrsla á Joomla 1.5

Nú fer að óðum að styttast í útgáfu 1.5 af Joomla vefumsjónarkerfinu en unnið hefur verið hörðum höndum að þróun hennar undanfarin ár. Joomla 1.5 er mikilvægur áfangastaður í þróun Joomla sem varð til þegar þróunaraðilar Mambo gengu frá borði allir sem einn í kjölfar ósættis um framgang og fyrirkomulag á þróun lausnarinnar. Fyrsta útgáfa ...

Lesa meira...

Heilsa og hagvöxtur í 300 ára sögu Svíþjóðar

Heilsa og hagvöxtur í 300 ára sögu Svíþjóðar

Á Gapminder vefnum er nú að finna tvö myndskeið sem eru í senn skemmtileg og fræðandi. Myndskeiðin eru birt undir yfirskriftinni Gapcast þar sem greinilega er verið að leika sér með hugtakið Podcast. Fræðimaðurinn sænski, Hans Rosling, er í aðalhlutverki í myndskeiðunum en Gapminder hugbúnaðurinn magnaði fer einnig með viðamikið hlutverk. [Translate]

Lesa meira...

ISO hafnar OOXML í fyrstu umferð

ISO hafnar OOXML í fyrstu umferð

Þrátt fyrir hástemndar yfirlýsingar Microsoft um alþjóðlegar vinsældir OOXML staðalsins í nýlegri fréttatilkynningu sem gefin út var í kjölfar nýafstaðinnar atkvæðagreiðslu á vegum ISO fóru leikar þannig að staðlinum var hafnað um svo kallað “fast track” samþykktarferli. Niðurstaðan hefur í för með sér að OOXML verður að fara í gegnum mun ítarlegra ferli þar sem ...

Lesa meira...

Dagur frjáls hugbúnaðar

Dagur frjáls hugbúnaðar

Í dag er alþjóðlegur dagur frjáls hugbúnaðar. Markmiðið með deginum er að upplýsa almenning um mikilvægi frjáls og opins hugbúnaðar og kosti og gríðarlegt magn vandaðs hugbúnaðar sem stendur öllum sem áhuga hafa til boða án leyfisgjalda. Frjáls og opinn hugbúnaður er sérstaklega mikilvægur í akademísku starfi þar sem fjársveltir skólar þurfa á öllu sínu ...

Lesa meira...

11 Sep Asides | Athugasemdir

Opnar lausnir í leikskólastarfi

Opnar lausnir í leikskólastarfi

Fjóla skrifar áhugaverða færslu um opnar lausnir í leikskólastarfi. [Translate]

Lesa meira...

Nýr og glæsilegur vefur 3F

Nýr og glæsilegur vefur 3F

3F nefnist félag þeirra sem starfa við upplýsingatækni í menntastofnunum landsins. Undanfarna daga hefur verið unnið að uppfærslu á vef félagsins og er nú afrakstur þeirrar vinnu að koma í ljós. Vefurinn er aðgengilegur á www.3f.is og þrátt fyrir að eitt og annað sé enn ógert er vel þess virði að kíkja í heimsókn. [Translate]

Lesa meira...

09 Sep Asides | Athugasemdir

Hin nýju 7 undur veraldar

Hin nýju 7 undur veraldar

Stórkostlegar myndir af hinum nýju 7 undrum veraldar. [Translate]

Lesa meira...

Vinsæl verkfæri í tölvustuddri kennslu

Vinsæl verkfæri í tölvustuddri kennslu

Centre for Learning & Performance Technologies sendi nýlega frá sér niðurstöður könnunar um vinsælustu verkfæri 109 sérfræðinga á sviði náms og kennslu. Yfir 400 forrit og vefir voru nefndir til sögunnar og vekur athygli að af 10 mest nefndu verkfærunum eru 8 ókeypis. Vinsælasta verkfærið reyndist Firefox vefskoðarinn sem er opinn hugbúnaður. [Translate]

Lesa meira...