CommentPress – þegar um texta er að ræða

Skrifað 01. September 2007
Engar athugasemdir frá lesendum

CommentPress er nýtt þema við WordPress blogglausnina vinsælu sem umbreytir henni í einstakt birtingarkerfi fyrir hvers kyns ritsmíðar og athugasemdir lesenda. CommentPress er eins og sniðið fyrir akademískt umhverfi þar sem kennarar leggja til efni til aflestrar fyrir nemendur og óska eftir gagnrýnum athugasemdum eða skýringum. Ólíkt venjulegum bloggfærslum er CommentPress hannað með lengri færslur í huga, fagskrif, ritgerðir, jafnvel heilu bókarkaflana.

Ég hef tekið þátt í mörgum fjarnámsáföngum á háskólastigi, fleirum en mig langar til að rifja upp, þar sem okkur nemendum hefur verið gert að lesa greinar, vefsíður, bókahluta eða heilu bækurnar og skrá síðan fagleg viðbrögð okkar, samantekt eða pælingar í umræðukerfi námsstjórnunarkerfisins, sem oftar en ekki og illu heilli hefur reynst vera WebCT. Ég ætla samt ekki að fjargviðrast út í WebCT hér og nú, eins skemmtilegt og mér þykir það, heldur benda á kosti verkfæra eins og WordPress/CommentPress í skólastarfi.

Umræðukerfi þykja sjálfsagður hluti nútíma, netbundinna námsumhverfa hvaða nafni sem þau nefnast. Ég held að öll slík kerfi styðji við umræður með þar tilgerðum verkfærum á einn eða annan hátt. Í það minnsta öll kerfin sem ég þekki og þau eru þó nokkur. Umræður innan netbundinna námsumhverfa eru mikilvægur þáttur námsins sem þar fer fram og ég vil alls ekki gera lítið úr þeim hluta. En þær eru ofnotaðar og á ég þá við að þær eru notaðar til hluta sem þær henta illa og var kannski aldrei ætlað að leysa.

CommentPress er mjög gott dæmi um hugbúnaðarlausn sem hentar vel í akademísku umhverfi til hluta sem umræðukerfi námsumhverfanna netbundnu hafa oft verið nýtt, þ.e. skrá gagnrýni eða athugasemdir við lestrarefni, en henta illa. Kynnið ykkur til að mynda eftirfarandi grein um akademíska útgáfustarfsemi með því að smella á myndina hér að neðan. Takið sérstaklega eftir því hvernig athugasemdunum er háttað.

commentpress.jpg

Ólíkt Wordpress, sem er nokkuð hefðbundið bloggkerfi, gerir CommentPress þemað eins og sjá má í sýnishorninu ráð fyrir athugasemdum við hverja einstaka efnisgrein og birtir sérstakt tákn við efnisgreinar texta ns til að einfalda skráningu á athugasemdum. CommentPress staðsetur einnig athugasemdir á þann hátt að þær eru samhliða textanum sem um er rætt, þ.e. ekki eins og neðanmálsgreinar undir textanum líkt og algengast er í hefðbundum blogglausnum. Þetta er mikilvægt og gerir notendum, kennurum og nemendum í okkar tilfelli, auðveldara um vik að fylgjast með athugasemdum, skrá þær og greina samfellu milli texta og athugasemda. CommentPress skapar umræður úr hefðbundnum skrifum.

CommentPress er spennandi, opið og ókeypis verkfæri sem auðvelt er að setja upp og enn auðveldara að nota. Ég mun örugglega nýta mér CommentPress í minni kennslu en hvet um leið aðra áhugasama kennara að kynna sér málið og býð fram aðstoð mína ef einhver vill þiggja. Auðvitað geri ég mér grein fyrir því að úrval af stafrænum textum íslenskum sem hægt er að nýta í kerfi sem þessu er af skornum skammti enn sem komið er. Ég sé þó fyrir mér að fyrirbæri eins og Netla Kennaraháskólans gæti birt efni á þessu sniði, eða í það minnsta gefið kennurum kost á því að nýta efni á þennan hátt. Til þess verður Netla líklegast að gefa efni sitt út samkvæmt opnu höfundarleyfi sem heimilar öllum sem áhuga hafa að yfirfæra það á CommentPress vef. Creative Commons leyfi myndi henta ágætlega til slíks brúks. Það væri reyndar mjög áhugavert að hafa aðgang að efni Netlu samkvæmt opnu leyfi. Önnur uppspretta íslenskra texta gæti verið Netútgáfan. Mér sýnist Netútgáfan hafa lagt upp laupana, en þar má engu að síður ennþá finna ýmsa texta, s.s. Biblíuna, íslensk fornrit, kvæði, skáldsögur, þjóðsögur og æfintýri og margvíslegt annað efni.

Fleiri sýnishorn


Tengt efni

Skráðu athugasemd

On the powers of time

    Af sama tagi

    Nýlega lesið

    Eldra efni