Pecha Kucha (borið fram peh-chak-cha) er í senn viðburður sem á sér stað í tíma og rúmi og hnitmiðaður, skapandi framsetningarmáti. Knöpp formgerð Pecha Kucha gerir það að verkum að markvisst er leitast við að komast að kjarna málsins án málalenginga eða óþarfa útúrdúra. Umræður og spurningar fara fram í lok hverrar kynningar og er það reynsla þeirra sem kynnst hafa Pecha kucha að það skapi mun fjörugri skoðanaskipti en hefðbundin framsaga. Pecha kucha er skemmtilegt samspil tals og mynda, stundum tóna eða texta, sem er fastmótað og í eðli sínu einfalt líkt og hækurnar japönsku eða Eddukvæðin okkar Íslendinga er fastmótað en getur haft svo djúpstæð áhrif.
Pecha Kucha kvöld eru haldin reglulega í ekki færri en 42 borgum víðsvegar um heiminn og snúast venjulega um hönnun, arkitektúr, ljósmyndun eða listsköpun almennt. Viðskiptageirinn hefur einnig uppgötvað Pecha kucha og finnast nú fjölmörg fyrirtæki sem leggja áherslu á að takmarka innanhúskynningar við nákvæmlega 6 mínútur og 40 sekúndur. Powerpoint hentar ágætlega til þessara verka enda er lítið mál að stilla tímalengd hverrar glæru við 20 sekúndur. Pecha Kucha er enda öflugt mótefni við Powerpoint heilkennið illskeytta sem ég fjallaði ítarlega um í pistli nýlega.
Pecha Kucha í skólastarfi
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti er, að því ég best veit, fyrsti skólinn hér á landi til þess að taka Pecha Kucha upp á arma sína með það í huga að nýta í námi og kennslu. Ég fullyrði samt ekkert og óska eftir upplýsingum frá þeim sem kunna að þekkja betur til. Kennarar á listasviði FB hafa þegar ákveðið að nýta þennan framsetningarmáta í vinnu með nemendum og kennarar á hinni framsæknu starfsbraut skólans einnig. Það er vonandi að fleiri skólar fylgi í kjölfarið og mun ég örugglega leggja mitt af mörkum til að kynna Pecha Kucha sem víðast og við öll tækifæri.
Ég er einnig spenntur fyrir því að setja upp Pecha Kucha kvöld hér á landi. Ef einhver þarna úti hefur áhuga á samstarfi hvað það varðar þá vinsamlegast hafðu samband.


