Vinsæl verkfæri í tölvustuddri kennslu

Skrifað 07. September 2007
Engar athugasemdir frá lesendum

Centre for Learning & Performance Technologies sendi nýlega frá sér niðurstöður könnunar um vinsælustu verkfæri 109 sérfræðinga á sviði náms og kennslu. Yfir 400 forrit og vefir voru nefndir til sögunnar og vekur athygli að af 10 mest nefndu verkfærunum eru 8 ókeypis. Vinsælasta verkfærið reyndist Firefox vefskoðarinn sem er opinn hugbúnaður.

Á vef Centre for Learning & Performance Technologies er hægt að skoða lista yfir 100 vinsælustu verkfærin og kennir þar ýmissa grasa. Moodle námsumhverfið er t.d. í 12. – 13. sæti og Wikispaces í því 15. Excel töflureiknirinn er í 22. – 23. sæti en bæði Word og Powerpoint ná inn á top 10.

Sérstaka athygli vekur hversu mörg ókeypis verkfæri eru listanum yfir 100 vinsælustu verkfærin eða alls 70 verkfæri.


Tengt efni

Skráðu athugasemd

On the powers of time

    Af sama tagi

    Nýlega lesið

    Eldra efni