ISO hafnar OOXML í fyrstu umferð
Þrátt fyrir hástemndar yfirlýsingar Microsoft um alþjóðlegar vinsældir OOXML staðalsins í nýlegri fréttatilkynningu sem gefin út var í kjölfar nýafstaðinnar atkvæðagreiðslu á vegum ISO fóru leikar þannig að staðlinum var hafnað um svo kallað “fast track” samþykktarferli. Niðurstaðan hefur í för með sér að OOXML verður að fara í gegnum mun ítarlegra ferli þar sem tekið verður tillit til ógrynni athugasemda p-meðlima JTC1 (Joint Technical Committee 1), þeirra sem kusu nei og skiluðu athugasemdum. Kosið verður á ný á fyrra hluta næsta árs og verða þá afdrif staðalsins endanlega ljós.
Í því skyni að tryggja OOXML “fast track” meðferð þurfti Microsoft á að halda 2/3 hluta atkvæða p-meðlima JTC1 nefndar ISO. Óhætt er að segja að fyrirtækið hafi lagt allt undir í þeim slag og helgaði tilgangurinn greinilega öll meðöl. Hér á Íslandi hafði Microsoft frumkvæði að stofnun tækninefndar innan staðlaráðs, en sú nefnd mun fara með atkvæði Íslendinga á þessum vettvangi. Hafi markmið þeirra Microsoft manna verið að greiða atkvæði í fyrrgreindri kosningu voru þeir of seinir á ferðinni en P aðild að JTC1 nefnd ISO mun engu að síður gera Íslandi kleift að taka þátt í kosningunum í febrúar á næsta ári og þar með hlutdeild í örlögum OOXML. Í Svíþjóð varð Microsoft uppvíst að einni vandræðalegustu uppákomu síðari ára þegar upp komst um fullkomlega siðlausar aðgerðir fyrirtækisins til að bera fé á fyrirtæki sænsk í því skyni að tryggja sér jáyrði þarlendrar tækninefndar. Til allrar lukku komst upp um svikin og Svíar drógu jáyrði sitt til baka og ákváðu að sitja hjá í kosningunum. Það verður seint sannað en ýmsir hlutaaðeigandi aðilar hafa lýst þeirri skoðun sinni að mikill fjöldi nýrra p-meðlima í JTC1 nefnd ISO rétt fyrir kosningarnar megi skrifast á aðgerðir og þrýsting frá Microsoft.
Eftirminnileg fréttatilkynning Microsoft
Ég mæli eindregið með því að allir sem áhuga hafa á því að kynnast sannfæringarmætti markaðsdeildar Microsoft renni yfir sér til gagns og þó helst gamans fyrrgreinda fréttatilkynningu Microsoft, en af lestri hennar er það helst að ráða að fyrirtækið hafi unnið eftirminnilegan yfirburðarsigur í kosningunum nýafstöðnum um “fast track” ferlið. Markaðsdeild Microsoft á sannarlega heiður skilið fyrir framtakið og verður seint sagt um þá einstaklinga sem þar starfa að þeir vinni ekki fyrir kaupinu sínu. Lesið t.a.m. eftirfarandi efnisgrein.
Hér er með vilja blandað saman atkvæðum P (participating member) og O (observing member) aðildarríkja en hin fyrrnefndu hafa mun meira vægi og skiptu í raun öllu máli í kosningunni. Þetta atriði var að gefnu tilefni nákvæmlega útlistað á fundi staðlaráðs hér á Íslandi og ég efast ekki um að áróðursmeistarar Microsoft hafi haft fulla vitneskju um staðreyndir málsins þegar fréttatilkynningin var svo skáldlega saman sett. Á hinn bóginn er ekki hægt að saka Microsoft um að fara með rangt mál, einungis hagræða sannleikanum svo betur fari. Það kemur svo sem lítið á óvart í ljósi sögunnar og það þrátt fyrir hjartnæmar yfirlýsingar Sveins Benediktssonar, viðskiptastjóra stærri fyrirtækja og hins opinbera hjá Microsoft á Íslandi, talsmann Microsoft á fundi staðlaráðs um daginn um siðferðisleg sinnaskipti Microsoft. Ég veit ekki um aðra sem fylgst hafa með þessu sjónarspili í kringum OOXML en framgangur málsins hefur ekki aukið traust mitt á fyrirtækinu né siðferði þess.
Að mínu viti má draga mikilvægan lærdóm af undangenginni atkvæðagreiðslu og atburðum henni tengdri. Ég bendi sérstaklega á þrjá þætti:
-
Samþykktarferlið innan ISO er meingallað og þolir ekki markaðslegar hernaðaraðgerðir líkt og þær sem Microsoft hefur undanfarið staðið fyrir.
Þessi fullyrðing er svo augljós og svo margir málsmetandi menn hafa vakið athygli á þessum þætti að ég mun ekki eyða mörgum orðum í hann. Hér má heldur ekki gleyma því að hinn staðallinn, þ.e. ODF, sem m.a. Open Office notar og þegar hefur hlotið samþykki ISO er ekki án sinna stuðningsaðila en meðal þeirra eru t.d. IBM og Google. IBM lýsti því nýlega yfir að fyrirtækið hyggðist koma með áberandi hætti að þróun Open Office hugbúnaðarins og Google hefur lýst yfir ánægju sinni með afdrif OOXML í nýafstöðnum kosningum ISO.
-
Hið eina rétta í stöðunni var að kjósa nei og skila inn athugasemdum.
OOXML staðallinn er ekki fullkominn frekar en aðrir staðlar. Jafnvel Microsoft hefur viðurkennt það í fréttatilkynningunni kostulegu. Hefði “fast track” ferlið verið samþykkt er engin trygging fyrir því að tillit hefði verið tekið til fjölmargra réttmætra athugasemda hlutaaðeigandi aðila. Ég neita því ekki að ég er frekar vilhallur undir ODF staðalinn en óháð því þá hljóta allir að sjá nauðsyn þess að tillit sé tekið til ábendinga og athugasemda til þess boðaðra sérfræðinga. Ég minni einnig á þá staðreynd að Sveinn Benediktsson hjá Microsoft á Íslandi kallaði eftir og fagnaði öllum athugasemdum um OOXML staðalinn á margumræddum fundi staðlaráðs.
-
OOXML verður opinn staðall
Þrátt fyrir fyrirsjáanleg örlög OOXML í undangengnum kosningum ISO og víðtæka, alþjóðlega andspyrnu er ljóst að hér er einungis um að ræða hraðahindrun á vegi staðalsins að endanlegri samþykkt ISO. Á fundi ISO í febrúar á næsta ári verða athugasemdirnar sem fylgdu nei atkvæðunum ræddar með hliðsjón af breytingum á staðlinum. Þetta merkir að ríki sem höfnuðu staðlinum nú í september geta breytt atkvæði sínu þyki þeim fyrirætlaðar breytingar koma nægjanlega til móts við athugasemdir þeirra. Það er mín persónulega skoðun að Microsoft muni nýta tímann fram að fundinum í febrúar mjög vel til þess að tryggja jákvæða niðurstöðu með einu eða öðru móti. Ég læt ykkur lesendur um að túlka hvað nákvæmlega býr í þessum orðum mínum.
Að lokum vil ég nota þetta tækifæri og vekja athygli á þriðja skráarsniðinu sem hugsanlega gæti átt eftir að leita eftir samþykki ISO líkt og ODF hefur þegar gert og hlotið og OOXML gerir um þessar mundir. Hér á ég við PDF staðal Adobe. Fari svo á endanum að við höfum þrjá opna staðla, alla á sama vettvangi “skrifstofuhugbúnaðar” er augljóst að allt hagræði og allir kostir opinna staðla eru bornir fyrir róða. Eina fyrirtækið sem hagnast á slíkri framtíðarsýn er Microsoft sem býr nú þegar við markaðslega yfirburðarstöðu og kýs að sjálfsögðu að halda henni sem lengst. Ég vona hið besta en því miður er ég hræddur um að erfiðir tímar séu í vændum.


