Close

Svona gerum við

Námsefni

Heilsa og hagvöxtur í 300 ára sögu Svíþjóðar

Á Gapminder vefnum er nú að finna tvö myndskeið sem eru í senn skemmtileg og fræðandi. Myndskeiðin eru birt undir yfirskriftinni Gapcast þar sem greinilega er verið að leika sér með hugtakið Podcast. Fræðimaðurinn sænski, Hans Rosling, er í aðalhlutverki í myndskeiðunum en Gapminder hugbúnaðurinn magnaði fer einnig með viðamikið hlutverk.


 
Í fyrra myndskeiðinu fjallar Rosling um hagvöxt og heilsufar samlanda sinna Svía í 300 ár. Á einungis 6 mínútum fjallar hann um þróun á hagvexti og heilsufari í Svíþjóð á tímabilinu 1709 – 2004 og ber hana saman við lönd eins og Sierra Leone og Japan. Seinna myndskeiðið er hluti af stærra verki og er ekki síður áhugavert áhorfs.

Það er frábært að fylgjast með Rosling. Hann er skemmtilegur fyrirlesari og rígheldur manni við efnið hversu óáhugavert það kann að þykjast við fyrstu sýn. Hitt er líka að Gapminder, hugbúnaðurinn sem Rosling er einn höfunda að, er töfratæki þegar kemur að myndrænni framsetningu gagna. Ég hvet alla kennara til að kynna sér Gapminder og ekki síður fyrirlestra Hans Rosling á TED ráðstefnunni á þessu og síðasta ári.


Tengt efni

Skráðu athugasemd