Close

Svona gerum við

Námsefni

Prufukeyrsla á Joomla 1.5

joomla.jpgNú fer að óðum að styttast í útgáfu 1.5 af Joomla vefumsjónarkerfinu en unnið hefur verið hörðum höndum að þróun hennar undanfarin ár. Joomla 1.5 er mikilvægur áfangastaður í þróun Joomla sem varð til þegar þróunaraðilar Mambo gengu frá borði allir sem einn í kjölfar ósættis um framgang og fyrirkomulag á þróun lausnarinnar. Fyrsta útgáfa Joomla leit dagsins ljós þann 15 Sept. 2005 en það verður ekki fyrr en með tilkomu Joomla 1.5 sem Mambo og Joomla verða endanlega skilin að skiptum.

Joomla 1.5 byggir á sömu hugmyndafræði og að mestu leyti sama notendaviðmóti og Mambo en lausnin hefur verið endurskrifuð frá grunni og er bæði þjálli í notkun, öruggari og nútímalegri. Notendaviðmótið státar af Ajax tækni og ýmsar aðgerðir sem reyndust óþarflega flóknar í Mambo og Joomla 1.x útgáfunum hafa verið einfaldaðar til muna.

Vert er að hafa í huga að þrátt fyrir augljósa frændsemi Joomla 1.5 og Mambo fyrirrennara þess er Joomla lausnin endursköpuð frá toppi til táar. Fjölmargar breytingar og nýir og spennandi kostir blasa við notendum sem þekkja til Mambo eða eldri útgáfa Joomla, en hitt er ekki síður mikilvægt, þ.e. það sem leynist undir húddinu ef svo má að orði komast og snýr að þróunaraðilum og notendum sem vilja kafa dýpra og sníða kerfið betur að eigin þörfum.

Ég prufukeyrði Joomla 1.5 RC2 (release candidate 2) fyrir stuttu og hef nú sett nokkrar myndir á Flickr þar sem ég lýsi því helsta sem fyrir augun bar. Smellið hér til að opna Flickr glærusýninguna. Athugið að þegar þið skoðið myndirnar að til að sjá þær almennilega verður að stækka þær upp.

flickr_staekka.jpg

Gera má ráð fyrir í það minnsta tveimur útgáfum enn af Joomla 1.5 áður en endanleg útgáfa lítur dagsins ljós. Endanlegt er reyndar ekki orðið sem heppilegast er að nota í þessu samhengi því á sömu mínútu og Joomla 1.5 er komið á markaðinn verður hafist handa við þróun á næstu útgáfu.

Í leiðinni hvet ég ykkur til að lesa þessa færslu Ellu Jónu um Joomla og skoða vef leikskólans Furugrund í Kópavogi sem Fjóla Þorvaldsdóttir á heiðurinn af.



Tengt efni

Skráðu athugasemd