Close

Svona gerum við

Námsefni

Rissað og skissað með Sketchcast

Sketchcast er netbundin þjónusta sem býðurnotendum upp á skemmtilega leið til þess að setja saman og birta einfaldar skissur með eða án tals á hvaða vef sem er.

Sketchcast er stórsniðug hugmynd sem vafalítið getur komið sér vel fyrir fjölmarga, t.d. þá sem vilja koma á framfæri hugmyndum eða útskýringum á fljótlegan og fyrirhafnalítin hátt. Ég get vel ímyndað mér áhugasama kennara sem gætu hugsað sér að nýta verkfæri sem þetta í kennslu. Sjáið t.d. eftirfarandi teikningu.

Notendaviðmót Sketchcast er mjög þægilegt enda valkostirnir ekki svo margir. Hægt er að draga línur í nokkrum litum og skrifa texta. Einnig er hægt að velja hvort hljóð er tekið upp samhliða teikningunni eða ekki.

Notendaviðmót Sketchpad

Notendaviðmót Sketchpad

Vankantar þjónustunnar eru hins vegar ýmislegir. Í fyrsta lagi er erfitt að teikna svo eitthvað vit sé að með mús. Ég er kannski ekki besta dæmið samanber teikninguna eftir mig hér að neðan, en þar til gert skrifborð er nauðsynlegt að mínu mati ef vel á að vera. Í öðru lagi þá er ekki mögulegt að nota séríslenska bókstafi í nöfnum teikninga. Ég hef sent fyrirspurn vegna þessa og vonandi verður fljótlega bætt úr því.

Sketchcast er opið öllum án endurgjalds og eina sem til þarf er að stofna aðgang og byrja að teikna. Teikningar eru birtar á vefjum með því að sækja kóða sem fylgir hverri teikningu, líkt og myndskeiðunum á uTube eða glærunum á Slideshare.


Tengt efni

Skráðu athugasemd