Skýrslan er ekki aðgengileg í heild sinni nema gegn gjaldi, en brot úr niðurstöðum hennar má engu að síður nálgast á Netinu. Hér að neðan má t.a.m. sjá gröf sem endurspegla ánægju notenda með einstaka lausnir. Niðurstöðurnar eru greinilega Moodle mjög í hag.
Almenn ánægja meðal stærri fyrirtækja

Almenn ánægja meðal smærri og meðalstórra fyrirtækja
Almenn ánægja meðal menntastofnana
Hér fyrir neðan má svo sjá helstu niðurstöður rannsóknarinnar hvað varðar hindranirnar í notkun og innleiðingu netbundinna námsumhverfa. Eins og búast mátti við er fjárhagslegur kostnaður mikilvægur þáttur. Stuðningur við notendur er í
öðru sæti og endurstrikar sú niðurstaða enn og aftur mikilvægi fræðslu og virkrar aðstoðar við notendur.
Þegar notendur voru spurðir um mikilvægustu þætti netbundinna námsumhverfa kom margt athyglisvert upp á yfirborðið. Það er t.d. áhugavert að lesa að rétt tæplega 79% þátttakenda töldu skýrslur og mælingar mikilvægasta þátt. Miðlun efnis kemur þar strax á eftir og í þriðja sæti mat. Þessar niðurstöður eru í ágætu samræmi við mína tilfinningu af notkun kerfanna, þ.e. að þau eru fyrst og fremst hugsuð sem verkfæri fyrir kennara.
Hugleiðið þessar niðurstöður:
- Rétt tæplega 30% aðspurðra stefna að því að uppfæra eigin lausn og tæplega 11% ætla sér að skipta um lausn
- Moodle er útbreiddasta kerfið meðal smærri skólastofnanna og fyrirtækja, þ.e. innleiðingar þar sem notendur eru 5000 eða færri
- 21% notenda segjast nýta meira en eitt netbundið námsumhverfi
Heimildir:
Learning Management System – LMS – Satisfaction
Elearningguild


