Archive: October 2007

Harpa Hreinsdóttir bloggar um fjarkennslu

Skráð 31 October 2007
Flokkur: Asides
Engar athugasemdir frá lesendum

Harpa Hreinsdóttir hefur skrifað nokkrar beinskeyttar færslur á blogg sitt þar sem hún fer hörðum og háðuglegum orðum um fjarkennslu og þá skóla sem bjóða upp á nám með slíku fyrirkomulagi. Greinarnar eru: Fjarkennsla og afkastageta, Uppgrip í fjarkennslu, Frumkvöðull í fjarkennslu; VMA, Fortíð, hugsjónir og fjarkennsla.


Vörður vísa veginn

Skráð 30 October 2007
Flokkur: Asides
Engar athugasemdir frá lesendum

Vörður vísa veginn. Ráðstefna 3F um upplýsingatækni og menntun – 2. nóvember í Verslunarskóla Íslands.


VectorMagic

Skráð 27 October 2007
Flokkur: Asides
Engar athugasemdir frá lesendum

VectorMagic er netbundin þjónusta sem gerir öllum sem þess þurfa kleift að breyta á einfaldan og fljótlegan hátt bitmap myndum, s.s. lógóum eða ljósmyndum, yfir í vektora.


Hvernig er veðrið?

Skráð 27 October 2007
Flokkur: Almennt
Engar athugasemdir frá lesendum

Clicker hugbúnaðurinn er einn fjölmargra stafrænna verkfæra sem við kennarar á Starfsbraut Fjölbrautaskólans í Breiðholti notum daglega með nemendum okkar. Clicker er öflugur hugbúnaður til framsetningar, nýsköpunar eða aðlögunar gagnvirkra verkefna sem geta innihaldið texta, myndir, tóna og tal. “Hvernig er veðrið” er ágætt sýnishorn af vel heppnuðu Clicker verkefni.


Ragga kveður sér hljóðs

Skráð 22 October 2007
Flokkur: Almennt
Engar athugasemdir frá lesendum

Talgervillinn Ragga hefur kveðið sér hljóðs en eftir langa þróunarvinnu er hugbúnaðurinn loksins kominn út í nokkuð endanlegri útgáfu. Ragga getur auðveldlega lesið íslenskan texta beint af skjá en einnig er hægt að tengja hana einstaka vefjum eða setja upp á tölvur einstaklinga.


Information R/evolution

Skráð 21 October 2007
Flokkur: Asides
Engar athugasemdir frá lesendum

Information R/evolution. Nýtt, magnað myndskeið frá Michael Wesh, höfundi Web 2.0 The Machine is Us/ing Us. Algjör perla.


Menntablogg

Skráð 15 October 2007
Flokkur: Asides
Engar athugasemdir frá lesendum

Stórsniðugt yfirlit yfir menntablogg.


Einföld teikniforrit fyrir leikskóla og yngri bekki grunnskóla

Skráð 13 October 2007
Flokkur: teikniforrit
Engar athugasemdir frá lesendum

Á sérstökum barnahluta vefs National Gallery of Art listasafninu í Washington má finna fjölda einfaldra en mjög skemmtilegra og skapandi teikniforrita sem öll eiga það sameiginlegt að tengjast viðfangsefni safnsins á einn eða annan hátt. Forritin eru netbundin og keyrð í gegnum vefskoðara.


Sérsniðin heimskort til útprentunar

Skráð 11 October 2007
Flokkur: Asides
Engar athugasemdir frá lesendum

Vantar þig útprentað heimskort í lit sem þú getur lagað að eigin þörfum? Skoðaðu þá þennan vef.


Hvers vegna nýta kennarar ekki tæknina?

Skráð 10 October 2007
Flokkur: skólaþróun
Engar athugasemdir frá lesendum

Fræðimaðurinn, kennarinn og bloggarinn David Warlick veltir fyrir sér ástæðum þess að kennarar virðast svo hikandi við að tileinka sér tækninýjungar í færslu sem hann nefnir “Teachers & Technology – a rant!”.
Í greininni veltir Warlick fyrir sér spurningu sem ég hef sjálfur oft velt fyrir mér og tengist þeirri staðreynd að kennarar hafa ótrúlegt [...]


On the powers of time

    Svona gerum við



    Athugasemdir


    Námsefni



    Flokkar


    Áhugavert

    • Dagana 12. – 14. ágúst 2010 fer fram ráðstefnan Nordic GeoGebra 2010 á Menntavísindasviði. Frekari upplýsingar á vef HÍ.

    • Tryggvi Thayer ritar áhugaverðan pistil um atvinnulíf og skólamál.

    • Fræðslufundur um ADHD og tölvufíkn verður haldinn á vegum ADHD samtakanna miðvikudaginn 30. júní kl. 20 í Safnaðarheimili Háteigskirkju. Frekari upplýsingar á vef ADHD samtakanna.

    • Myndband og stutt grein Guðjóns H. Haukssonar um allt það óhugnalega efni sem opið er börnum á Netinu. Þetta á erindi við alla foreldra.

    Gagn og gaman

    • Kattaveiðar

    • Tónhendur

    • Flame

    • TurnMood