Clicker er hugbúnaður sérstaklega þróaður með þarfir nemenda sem eiga erfitt með lestur og ritun í huga. Hann kemur að góðum notum í sérkennsl en nýtist einnig vel með elstu nemendum leikskólans og yngri bekkjum grunnskólans. Clicker er mjög spennandi verkfæri í byrjendakennslu í ensku.
Clicker grundvallast á tveimur aðskildum en tengdum hlutum, þ.e. ritvinnslu og margmiðlunargrindum. Clicker verkefni geta samanstaðið af eintómum grindum eða samblandi af grindum og ritvinnslu. Ritvinnsluhluti Clicker inniheldur einungis algengustu skipanir en grindunum má hins vegar líkja við snertiskjá þar sem hægt er að móta hnappana, innihald þeirra og virkni að vild.
Einfaldlega Clicker
Ég nefni bókina og námskeiðið Einfaldlega Clicker. Hugmyndin er sú að hvort tveggja geti staðið sjálfstætt en ég mun engu að síður tengja efni bókarinnar við námskeiðið og umfjöllunarefni námskeiðsins ákveðnum köflum bókarinnar. Ég hef einnig ákveðið að allt efni á námskeiðinu verður gefið út samkvæmt Creative Commons leyfinu og verður það gert aðgengilegt án endurgjalds á Netinu. Þið getið t.d. séð brot af því efni sem komið er á wikivef Fjölbrautaskólans í Breiðholti.
Virðisaukinn af þátttöku á námskeiðinu felst fyrst og fremst í netbundinni nærveru kennara sem og samskiptum nemenda. Námskeiðið mun m.a. innihalda safn íslenskra Clicker verkefna sem mun vaxa eftir því sem fleiri taka þátt. Námskeiðið er ótímabundið, þ.e. þátttakendur geta farið í gegnum efnið á eigin hraða, óháð stað og stund. Þátttaka er ókeypis til áramóta en eftir áramót gefst þátttakendum kostur á því að skrá sig gegn mjög hógværu ársgjaldi. Ég geri ráð fyrir að það gjald verði eitthvað í kringum 2000 krónur fyrir hvern þátttakanda.
Áhugasamir geta sent mér tölvupóst á sfjalar@gmail.com til að fá aðgang að námskeiðinu þegar það opnað. Athugið að sá böggull fylgir skammrifi að viðomandi verða skráðir á póstlista þessa vefs og fá sendan tölvupóst einu sinni í viku með upplýsingum um uppfærslur á vefnum.
Einfaldlega Clicker – bókin
Hér fyrir neðan getur svo að líta drög að einum kafla bókarinnar þar sem möguleikar og virkni Clicker eru kynntir fyrir lesendum. Ég mun kynna bókina mun betur þegar nær dregur útgáfu.


