Einföld teikniforrit fyrir leikskóla og yngri bekki grunnskóla

Skrifað 13. October 2007
Flokkur: teikniforrit
Engar athugasemdir frá lesendum

Á sérstökum barnahluta vefs National Gallery of Art listasafninu í Washington má finna fjölda einfaldra en mjög skemmtilegra og skapandi teikniforrita sem öll eiga það sameiginlegt að tengjast viðfangsefni safnsins á einn eða annan hátt. Forritin eru netbundin og keyrð í gegnum vefskoðara.

BRUSHster

Brushter er sniðugt forrit til að búa til abstrakt myndir. Hægt er að velja á milli yfir 40 ólíkra pensla og breyta áferð þeirra, virkni og stærð. Einnig inniheldur forritið aðgerðir til að blanda saman litum og klessa liti saman svo fátt eitt sé nefnt.

Jungle Interactive

Jungle Interactive er teikniforrit sem er sérstaklega hugsað til þess að teikna myndir í anda franska listamannsins Henri Rousseau sem málaði í svokölluðum naívisma. Rousseau valdi sér gjarnan myndefni sem tengdist frumskóginum og dýraríkinu en sjálfur yfirgaf hann aldrei Frakkland.

Collage Machine I og II

Collage Machine gerir þér kleift að skeyta saman og vinna með ólíkar smámyndir, einskonar stimpla. Collage er aðferð í myndlist þar sem steypt er saman ólíkum hlutum, s.s. úrklippum og ýmsum smáhlutum eða efnum. Stundum er einnig málað á myndflötinn. Orðið Collage er dregið af franska orðinu Coller sem þýðir að líma. Á íslensku hefur orðið klippimynd verið notað yfir þetta listform.
(Heimild: Wikipedia)

Flow

Flow er heillandi verkfæri til frumlegrar og lifandi listsköpunar. Með Flow er hægt að búa til hvers kyns form og hreyfa þau um skjáinn með músinni. Sjón er sögu ríkari.


Tengt efni

Skráðu athugasemd

On the powers of time

    Af sama tagi

    Nýlega lesið

    Eldra efni