Ragga er án nokkurs vafa betri talgervill en fyrirrennari sinn Snorri og boðar marga afar spennandi kosti í skólastarfi. Ég er alveg sannfærður um að með tilkomu Röggu opnist fjölmörgum nemendum heill heimur tækifæra sem þeim áður stóð ekki til boða. Í þessu sambandi má sérstaklega benda á nemendur með sértæka lesröskun og einnig fólk með fötlun.
Ragga getur lesið íslenskan texta af Netinu
Góð leið til þess að kynna sér möguleika Röggu felst í því að setja upp “Lestu þetta” tengil í vefskoðara og nota hann til þess að láta Röggu lesa upp texta beint af vef. Leiðbeiningar um uppsetninguna má finna hér. Ég mæli með því að kennarar kynni sér vel þennan valkost og meti hvort hann komi nemendum sínum að gagni. Sjálfur finnst mér þetta áhugaverður eiginleiki en get ekki ímyndað mér að hann komið að miklu gagni við vefskoðun þar sem notandinn er fluttur á aðra vefsíðu þar sem upplesturinn á sér stað. Mér finnst einnig skrítið að sú vefsíða skuli innihalda blöndu af íslenskum og enskum texta og þar að auki auglýsingar.

Ég hef ekki náð að kynna mér Röggu nógu vel en hér og nú þá er ég spenntastur fyrir því að tengja hana beint við vefi, þ.e. bjóða upp á sjálfvirkan uppsetur á efni vefs, eða tengja við skjálesara í tölvu notenda. Ég mun skoða þá kosti betur síðar.
Kostir og gallar
Ragga er fáanlegur með skjálesurum af ýmsum gerðum en hún er því miður dýrkeyptur hugbúnaður, kostar tæpar 50.000 krónur hjá Örtækni. Eins og alltaf þá mun hár kostnaður örugglega koma helst niður á þeim notendum sem mest þurfa á Röggu að halda. Þannig er það bara og hefur alltaf verið. Skólar og aðrir sem þjónusta lesblinda námsmenn geta samkvæmt upplýsingum á vef Hexia fengið aðgang að Röggu á hagkvæmu verði. Ég veit ekki í þessu augnabliki hvað það þýðir nákvæmlega.
Ragga hljómar ágætlega en virkar reyndar á stundum dálítið grátklökk. Vonandi verður hægt að bæta úr því. Ég væri einnig til í að geta vistað hljóðskrár sem Ragga býr til. Kannski ég spyrji sérfræðingana frá Hexia um það atriði.


