Hvernig er veðrið?
Clicker hugbúnaðurinn er einn fjölmargra stafrænna verkfæra sem við kennarar á Starfsbraut Fjölbrautaskólans í Breiðholti notum daglega með nemendum okkar. Clicker er öflugur hugbúnaður til framsetningar, nýsköpunar eða aðlögunar gagnvirkra verkefna sem geta innihaldið texta, myndir, tóna og tal. “Hvernig er veðrið” er ágætt sýnishorn af vel heppnuðu Clicker verkefni.
Clicker hugbúnaðurinn grundvallast á tveimur aðskildum en samt tengdum hlutum, ritvinnslu og grindum. Clicker verkefni geta samanstaðið af eintómum grindum eða samblandi af grindum og ritvinnslu. Ritunarhluti Clicker er ekkert annað en einföld ritvinnsla með innbyggðum talgervli. Hægt er að slá inn texta með lyklaborðinu, útlitsmóta hann á ýmsa vegu með hnöppum á tækjastiku (sjá mynd), s.s. feitletra, skáletra eða undirstrika. Einnig er hægt að setja inn myndir og krækjur. Grindunum má hins vegar líkja við snertiskjá þar sem hægt er að móta hnappana, innihald þeirra og útlit að vild. Hægt er að ráða stærð hnappa eða reita í grindinni og þeir geta innihaldið texta og/eða mynd. Einfalt er að tengja hljóðupptöku við einstaka reiti og er innifalið í Clicker lítið upptökuforrit
Hvernig er veðrið?
Í þessu verkefni er unnið með heiti vikudaga og mánuða og veðrið. Verkefnið byggir á því að nemendur velja viðkomandi mánuð og dag og lýsa auk þess veðrinu með texta og á myndrænan hátt. Þetta er gert þannig að sprettigluggar eru kallaðir fram með því að smella í viðkomandi reiti í grindinni.

Verkefnið er sótt og þýtt af LearningGrids.com vefnum sem inniheldur fjölda verkefna fyrir Clicker og annan hugbúnað frá Cricksoft fyrirtækinu. Smelltu hér til að sækja verkefnið Hvernig er veðrið á íslensku. Athugaðu að þú gætir þurft að smella með hægri músarhnappi og vista skjalið yfir á tölvuna þína.


